Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) tekur kæru Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns til efnismeðferðar.
Aðalsteinn telur að brotið hafi verið gegn 8. grein mannréttindasáttmála Evrópu því innlendir dómstólar hafi ekki verndað mannorð hans gegn tilhæfulausum ásökunum bloggarans Páls Vilhjálmssonar um alvarlega glæpi.
Sakaði Aðalstein um glæpi
Bloggarinn Páll Vilhjálmsson tjáði sig reglulega um rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á Aðalsteini og öðrum fyrir meinta byrlun og afritun á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra. Rannsóknin var felld niður 2024.
Páll sakaði í skrifum sínum Aðalstein meðal annars um að hafa framið glæpi sem Páll skipstjóri kærði hann fyrir.
Aðalsteinn kærði Pál vegna skrifanna og fór fram á að þau yrðu dæmd dauð og ómerk. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði Aðalsteini í vil en Landsréttur sneri niðurstöðunni við.
Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að ummæli Páls væru beinskeytt og óvægin yrði að líta til þess að Aðalsteinn hefði haft stöðu sakbornings og sætt rannsókn lögreglu þegar ummælin féllu.
Páll hefði enn fremur verið þátttakandi í almennri umræðu um mikilvæg samfélagsleg málefni sem erindi ættu við almenning. Hann hefði af þeim sökum notið rúms tjáningarfrelsis á meðan Aðalsteinn mátti, sem blaðamaður og opinber persóna, gera ráð fyrir að þurfa að þola hvassa og óvægna gagnrýni í kjölfar eigin skrifa.
„Gleðiefni,“ segir Aðalsteinn
Aðalsteinn segir það gleðilegt að málið verði tekið til efnismeðferðar. Margir fari þess á leit og ekki sjálfsagt að dómstóllinn taki mál fyrir.
„Þetta er heljarinnar verkefni að fara í en það var ekki hægt að láta þessa niðurstöðu standa – að það væri í lagi að ljúga upp á mann alvarlegum glæpum því ég er blaðamaður.“