Verknámsaðstaða Menntaskólans á Ísafirði er löngu sprungin en framkvæmdir við nýtt hús ekki hafnar, þvert á loforð yfirvalda. Fyrir rúmum tveimur árum skrifuðu sveitarfélög við Ísafjarðardjúp og menntamálaráðuneyti undir viljayfirlýsingu um nýtt verknámshús. Stjórnendur voru fullvissaðir um að verkefnið væri fullfjármagnað en framkvæmdir eru enn ekki hafnar.
Á myndbandinu má sjá leiðina sem nemendur og kennarar þurfa að fara milli verknámsaðstöðunnar innanhúss og útisvæðis. Ferja þarf timbur í nokkrum ferðum milli svæða. Hver ferð tekur rúmar þrjár mínútur og krefst þess að burðarmenn komi inn í hárgreiðsludeild skólans, sem einnig er kennd í kjallaranum undir húsinu.