Sótt er að Kristilegum demókrötum, CDU, flokki Þýskalandskanslara, bæði frá vinstri jaðri stjórnmálanna og hægri í sambandsríkinu Mecklenburg-Vorpommern í Austur Þýskalandi og í borgarstjórnarkosningum í höfuðborginni Berlín. Þetta sýna nýjar skoðanakannanir gerðar fyrir ríkismiðilinn ZDF og birtar voru í dag. Kosningar eru 20. september.
CDU nærri því að ná ekki inn á þing
Hægri sinnaði harðlínuflokkurinn Alternative fur Deutchland, AfD, hlaut 44 prósent atkvæða í nýafstöðnum kosningum í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Það er besta kosning sem þjóðernissinnaður flokkur hefur hlotið í Þýskalandi frá árinu 1945.
Fylgi við Kristilega demókrata mælist sjö prósent í Mecklenburg-Vorpommer í könnuninni. Það yrði versta útkoma flokksins í sambandsríkjakosningum og vekur upp spurningar um hvort flokkurinn nái fimm prósenta þröskuldi sem þurfi til þess að ná þingsæti á þingis sambandsríkisins.
Alternative fur Deutchland mælist með mest fylgi, 37 prósent, og næst á eftir koma vinstri-miðjuflokkurinn Sósíaldemókratar, SPD, með 34 prósent. Sá flokkur er núna við stjórn í Mecklenborg-Vorpommer og situr í ríkisstjórn Þýskalands með Kristilegum demókrötum. Die Linke sem er sá flokkur sem er yst á vinstri vængnum mælist með þriðja mesta fylgið eða tíu prósent. Sá flokkur á rætur í kommúnistaflokknum sem var við völd í Austur-Þýskalandi fyrir fall Berlínarmúrsins 1989.
Verði þetta niðurstaða kosninganna þá yrði líklegast að samsteypustjórn þriggja flokka; SPD, Die Linke og Græningja yrði mynduð í sambandsríkinu vegna þess að AfD á enga mögulega samstarfsflokka. Nær allir stjórnmálaflokkar landsins neita að starfa með AfD sem sakaur hefur verið um kynþáttamismunun og tengsl við nýnasista.
Bandalag til vinstri líklegast í Berlín
Í borgarstjórnarkosningunum í Berlín mælist Die Linke með 23 prósenta fylgi, CDU með 21 prósent, AfD með 17 prósent, Græningjar með 16 prósent og SPD með tíu prósent. Í höfuðborginni er talið líklegast að Die Linke, Græningjar og SPD myndi bandalag til vinstri.
Vinsældir Friedrich Merz mælast með minnsta móti í könnunum. Stjórnmálaskýrendur segja að sigur jaðarflokka á hægri vængnum í Mecklenburg og jaðarvinstri sigur í Berlín yrði enn einn skellurinn fyrir kanslarann.