Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á River hrísgrjónum 1 kg vegna skordýraleifa sem fundust í pakkningu. Danól ehf. flytur hrísgrjónin inn en þau eru eingöngu seld í verslunum Samkaupa. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík.
Fólk er beðið um að neyta vörunnar ekki.
Innköllunin snýr eingöngu að vöru sem passar við eftirfarandi lýsingu:
- Vörumerki: River Rice
- Vöruheiti: River Rice White rice
- Nettómagn: 1 kg
- Vörunúmer: 430055
- Best fyrir dagsetning: 02.06.2028
- Innflytjandi: Danól, Fosshálsi 25, 110 Reykjavík
- Dreifing: Verslanir Samkaupa