Aðfaranótt fimmtudags var 19 ára drengur handtekinn á Akureyri. Rafbyssu var beitt við handtökuna en að mati lögreglu var drengurinn hættulegur sjálfum sér og öðrum. RÚV greindi frá málinu í gær en lögmaður drengsins, Gunnar Gíslason, hefur birt færslu vegna málsins þar sem hann gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð lögreglu sem hann telur hafa farið offorsi gegn skjólstæðingi sínum sem ekki geti kallast nokkuð annað en einelti.
Lögmaður segir rafbyssuna nýjasta kaflann í grófu einelti lögreglunnar í garð 19 ára drengs - „Hann var óvopnaður“