Leikkonan Charlize Theron stuðaði nærstadda þegar hún ræddi opinskátt um kynlífið sitt í neðanjarðarlest. Theron, sem er þekkt fyrir að tala opinskátt um einkalíf sitt, ræddi kynlíf og sambönd í viðtali við Kareem Rahma á samfélagsmiðlasíðunni Subway Takes. Þar var hún spurð hvað karlmaður gæti sagt í svefnherberginu sem færi sérstaklega í taugarnar á henni. Svarið kom um hæl.„Í hvert skipti sem strákur segir: „Mig langar að njóta ásta með þér,“ þá fæ ég algjört ógeð. Þetta er svo mikið turn-off,“ sagði Theron.
Charlize Theron stuðaði á almannafæri: „Þá lokast bara píkan mín“