Kona á sextugsaldri hefur verið dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni. Var henni gert að sök að hafa í nóvember árið 2023, á leið inn í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu, veist að lögreglumanni með ofbeldi en konan greip um kynfæri hans utanklæða er hann leiddi hana inn í fangaklefann með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut eymsli í eistun.
Tekist á um hvort „æst og óstýrilát“ kona hafi gripið þéttingsfast um kynfæri lögreglumanns