Eitt ár liðið frá því að fríverslunarsamningurinn tók gildi: viðskiptanefnd og blaðamönnum boðið til Indlands

Sendiherra Indlands á Íslandi, R. Ravindra, vonast eftir góðri þátttöku í ferð viðskiptasendinefndar frá Íslandi til Indlands í næsta mánuði. Tilefnið er að ár verður þá liðið frá því fríverslunarsamningur ríkjanna tók gildi.
Indland og EFTA-ríkin – Sviss, Ísland, Noregur og Liechtenstein – undirrituðu fríverslunarsamning (TEPA) 10. mars 2024 sem tók gildi 1. október í fyrra.
Vilja auka viðskipti ríkjanna
Ravindra sendiherra ræddi fyrirhugaða ferð til Indlands á fundi með íslenskum blaðamönnum í indverska sendiráðinu við Túngötu. Kom þar fram að haldið verður upp á TEPA-samninginn á Indlandi með dagskrá í Delí sem hefst 7. október næstkomandi. Hugsanlega muni ráðherra koma í heimsókn frá Íslandi, líklegast frá utanríkisráðuneytinu eða atvinnuvegaráðuneytinu. Þá verði fulltrúum úr íslensku atvinnulífi boðið á viðburðinn ásamt blaðamönnum en búist sé við allt að 25 fulltrúum.
Indverska sendiráðið á Íslandi er nú að fylgja eftir fríverslunarsamningnum með því að vekja athygli á möguleikum til að auka viðskipti ríkjanna.
Reiknar með vexti í ár
Blaðamaður Fréttarinnar spurði sendiherrann hvort indversk fyrirtæki hafi sýnt því áhuga að opna verksmiðjur eða annan rekstur á Íslandi sagði Ravindra sendiherra að fjárfestingin væri takmörkuð, enn sem komið er.
„Það hafa verið gerðar tilraunir, en satt best að segja er ekki um að ræða miklar indverskar fjárfestingar á Íslandi. Nokkur áhugi hefur verið á ferðaþjónustu, sérstaklega hvað varðar uppbyggingu hótela, en það hefur ekki orðið að veruleika. Ein skýringin kann að vera kostnaður. Verðlag hér á Íslandi er hátt og það kann að fæla frá fjárfesta,“ sagði Ravindra. Hins vegar hafi um 35.000 indverskir ferðamenn heimsótt Ísland í fyrra, samanborið við 24.000 árið áður, sem sé umtalsverður vöxtur.
„Við reiknum líka með vexti í ár. Það er erfitt að spá fyrir um hversu mikill hann verður, en ferðakostnaður er að aukast. Þannig að búast má við hóflegri aukningu.“
Beint flug milli ríkjanna
Þá spurði blaðamaður hvort búast megi við því að indverskum ferðamönnum muni fjölga á Íslandi, í takt við vöxt ferðaþjónustunnar á Indlandi, segir hann það rétt ályktað en að erfitt sé að spá fyrir um fjölgunina. Beint flug milli Indlands og Íslands sé til skoðunar og segist sendiherrann vonast til að samningar náist við flugfélögin sem allra fyrst.
„Samstarfssamningur Icelandair og Air India um sammerkt flug tók gildi í fyrra. Vonir standa til að beint flug geti hafist á næstu árum, en eitt flug á viku ætti að vera raunhæft. Áætlaður flugtími er um 9 klukkustundir og myndi innleiðing langdrægra flugvéla í flota Icelandair og Air India því auka líkur á slíku flugi,“ segir Ravindra.
Hann bindur vonir við að beint flug milli Íslands og Indlands verði að veruleika á ný í náinni framtíð. Það gæti haft töluverða þýðingu fyrir íslenska ferðaþjónustu, en sendiherrann segir ört vaxandi millistétt á Indlandi geta skapað gríðarleg tækifæri.
Gæti Ísland orðið tengistöð fyrir Indverja sem eru að ferðast til Bandaríkjanna?
„Að sjálfsögðu hefur verið þróað árangursríkt viðskiptalíkan á Keflavíkurflugvelli sem hefur verið tengistöð í áratugi. Icelandair tengir farþega við áfangastaði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Það þarf hins vegar að ferðast lengra til að fara til Indlands. Mér skilst að flugfélög á Indlandi og á Íslandi eigi í viðræðum og séu að kynna sér þessa möguleika. Ég reikna með að þau muni finna lendingu og er því nokkuð sannfærður um að þetta gangi upp á næstu tólf mánuðum eða svo,“ segir sendiherrann.

