Enn þykknar upp hjá SÁÁ - Vísir

Enn þykknar upp hjá SÁÁ - Vísir

Enn þykknar upp hjá SÁÁ - Vísir

Rúmlega sextíu starfsmenn skrifa undir yfirlýsinguna en meðal þeirra eru læknar, stjórnendur, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar, auk áfengis- og vímuefnaráðgjafa. RÚV greindi fyrst frá vantraustsyfirlýsingunni. 

Nýverið tilkynntu Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á Vík, að þær myndu láta af störfum hjá samtökunum. Þá hefur starfslokasamningur verið gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ. 

Landlæknir lítur átökin innan SÁÁ og brotthvarf reyndra stjórnenda mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú til skoðunar hjá embættinu.

Valgerður og Þóra hafa sakað stjórn SÁÁ um óeðlileg afskipti af meðferðarstarfi samtakanna sem fjármagnað er af ríkinu og sagt þau eina meginástæðu þess að þær sögðu starfi sínu lausu. Þá sagði Þóra sem hefur starfað hjá SÁÁ í áratug það fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi væri á forræði félagasamtaka og lýsti yfir miklum áhyggjum af framtíð meðferðarstarfsins. 

„Við köllum eftir því að aðalstjórn SÁÁ taki þegar í stað til formlegrar umfjöllunar ábyrgð formanns og framkvæmdastjórnar á þeirri atburðarás sem leitt hefur til núverandi stöðu og grípi til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til að endurreisa traust innan samtakanna,“ segir í yfirlýsingu eftirstandandi starfsmanna SÁÁ. 

„Jafnframt teljum við nauðsynlegt að tryggt verði með skýrum hætti að stjórn félagsins virði faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfs SÁÁ. Ákvarðanir sem varða faglega starfsemi, skipulag hennar og stjórnun verða að vera teknar í eðlilegu og raunverulegu samráði við þá faglegu stjórnendur sem bera ábyrgð á þjónustunni.“ 

Tilneydd að senda þetta frá sér

Helga Katrín Jónsdóttir, læknir hjá SÁÁ, segir í samtali við Vísi að mjög alvarleg staða sé uppi hjá SÁÁ og starfsmönnum hafi fundist þeir tilneyddir að senda þetta frá sér. Stór hluti starfsmanna á meðferðarsviði SÁÁ skrifi undir yfirlýsinguna.

Ólafur Guðmundsson, læknir og fagstjóri lækninga hjá SÁÁ, skrifar sömuleiðis undir og segir yfirlýsinguna hafa verið senda á aðalstjórn og framkvæmdastjórn samtakanna. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig sérstaklega um efni hennar.

Staðan hafi verið góð

„Það veldur okkur því miklum áhyggjum að sú uppbygging, samstaða og jákvæða þróun sem náðst hafði skuli nú vera í hættu. Við viljum fá að halda áfram á þeirri faglegu stefnu sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri sem náðst hafði undir forystu Ragnheiðar og annarra faglegra stjórnenda,“ segir í yfirlýsingunni.

Starfslokasamningur var nýlega gerður við Ragnheiði, forstjóra SÁÁ, líkt og áður segir. Staðan hafi verið góð innan SÁÁ áður en atburðarás síðustu vikna hófst, að mati þeirra sem undirrita yfirlýsinguna. 

„Við vorum stolt af þeirri uppbyggingu og framþróun sem hafði átt sér stað og ánægð með þá stefnu sem unnið var eftir undir forystu Ragnheiðar.“

Valgerður Rúnarsdóttir er hætt sem framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ.Vísir/Sigurjón

Ekki hægt að horfa fram hjá yfirlýsingum Valgerðar

Yfirlýsingar Valgerðar, fráfarandi framkvæmdastjóra lækninga, eru sagðar alvarlegar.

„Þegar einn reynslumesti læknir landsins á sviði fíknimeðferðar og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ lýsir því opinberlega að afskipti stjórnar af faglegu heilbrigðisstarfi séu óviðunandi og treystir sér ekki lengur til að starfa við þær aðstæður sem stjórn samtakanna hyggst skapa, teljum við ekki unnt að líta fram hjá því,“ segir í yfirlýsingu starfsfólks. 

Fréttin er í vinnslu.

Yfirlýsing starfsmannanna í heild sinni:

Við undirrituð, starfsmenn SÁÁ, lýsum yfir vantrausti á formann SÁÁ og framkvæmdastjórn samtakanna.

Sú alvarlega staða sem nú er komin upp innan SÁÁ verður að okkar mati ekki skýrð sem eðlilegar breytingar í stjórnun eða einstök starfsmannamál. Á skömmum tíma hafa lykilstjórnendur heilbrigðis- og meðferðarstarfs SÁÁ horfið frá störfum og fráfarandi stjórnendur lýst alvarlegum áhyggjum af afskiptum stjórnar af faglegu starfi samtakanna.

Áður en þessi atburðarás hófst var staðan innan SÁÁ að okkar mati góð. Við vorum stolt af þeirri uppbyggingu og framþróun sem hafði átt sér stað og ánægð með þá stefnu sem unnið var eftir undir forystu Ragnheiðar. Nýir samningar voru mikilvægur áfangi og mikill sigur fyrir starfsemina. Með þeim opnuðust tækifæri til frekari þróunar og eflingar þjónustunnar sem starfsfólk var bæði stolt af og spennt að taka þátt í að innleiða. Starfsánægja hafði að okkar mati aldrei verið meiri og ríkur vilji var meðal starfsfólks til að halda áfram þeirri vinnu sem hafin var.

Það veldur okkur því miklum áhyggjum að sú uppbygging, samstaða og jákvæða þróun sem náðst hafði skuli nú vera í hættu. Við viljum fá að halda áfram á þeirri faglegu stefnu sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri sem náðst hafði undir forystu Ragnheiðar og annarra faglegra stjórnenda.

Yfirlýsingar Valgerðar Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga, vega þungt í þessu samhengi. Þegar einn reynslumesti læknir landsins á sviði fíknimeðferðar og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ lýsir því opinberlega að afskipti stjórnar af faglegu heilbrigðisstarfi séu óviðunandi og treystir sér ekki lengur til að starfa við þær aðstæður sem stjórn samtakanna hyggst skapa, teljum við ekki unnt að líta fram hjá því.

Málið snýst því ekki eingöngu um ágreining einstaklinga. Það snýst um stjórnarhætti SÁÁ, faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins og framtíð þeirrar mikilvægu þjónustu sem samtökunum hefur verið treyst fyrir.

Starfsfólk SÁÁ ber daglega ríka ábyrgð gagnvart sjúklingum og aðstandendum þeirra. Við störfum samkvæmt faglegum og siðferðilegum skyldum og teljum okkur því verða að bregðast við þegar ákvarðanir og stjórnarhættir kunna að ógna faglegri samfellu, starfsfriði og trausti innan samtakanna.

Brottför reynslumikilla lykilstjórnenda, samhliða alvarlegum áhyggjum þeirra af afskiptum stjórnar af faglegu starfi, kallar á skýr svör. Að okkar mati hefur starfsfólki ekki verið veitt fullnægjandi skýring á því hvernig þessi staða varð til, hvar ábyrgðin liggur eða hvernig tryggja eigi faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins til framtíðar.

Traust verður ekki endurreist með því einu að lýsa yfir að starfsemin haldi áfram. Það byggist á gagnsæi, ábyrgð, trúverðugum upplýsingum og virðingu fyrir faglegum mörkum. Að okkar mati hefur traustið nú brostið.

Við köllum eftir því að aðalstjórn SÁÁ taki þegar í stað til formlegrar umfjöllunar ábyrgð formanns og framkvæmdastjórnar á þeirri atburðarás sem leitt hefur til núverandi stöðu og grípi til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til að endurreisa traust innan samtakanna.

Jafnframt teljum við nauðsynlegt að tryggt verði með skýrum hætti að stjórn félagsins virði faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfs SÁÁ. Ákvarðanir sem varða faglega starfsemi, skipulag hennar og stjórnun verða að vera teknar í eðlilegu og raunverulegu samráði við þá faglegu stjórnendur sem bera ábyrgð á þjónustunni.

SÁÁ eru ekki aðeins félagasamtök. Innan samtakanna er rekin umfangsmikil heilbrigðisþjónusta fyrir viðkvæman sjúklingahóp. Þeir sem fara með stjórn samtakanna bera því ríka ábyrgð á að ákvarðanir þeirra raski hvorki faglegu sjálfstæði né öryggi og samfellu þjónustunnar eða því trausti sem starfsemin byggist á.

Við lýsum ekki yfir vantrausti af léttúð. Við gerum það vegna þess að við teljum okkur bera skyldu til að standa vörð um sjúklinga okkar, samstarfsfólk, faglegt heilbrigðisstarf og framtíð SÁÁ.

Við viljum sjá SÁÁ halda áfram á þeirri faglegu og framsæknu braut sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri, metnaði og starfsánægju sem einkenndi starfsemina áður en núverandi staða kom upp.

Traust okkar til formanns og framkvæmdastjórnar SÁÁ er brostið. Aðalstjórn verður nú að bregðast við.

Undirritað:

Helga Katrín Jónsdóttir læknir

Elín Þórdís Meldal áfengis og vímuefnaráðgjafi, aðstoðarfagstjóri

Kristjana Gyða Pétursdóttir, móttökuritari

Helga Brynja áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Sandra Dögg Björnsdóttir sjúkraliði

Jónína Sigrún Birgisdóttir sálfræðingur

Benjamín Gíslason áfengis og vímuefnaráðgjafi

Axel Wilhelm Einarsson hjúkrunarfræðingur

Katrín Ella Jónsdóttir sálfræðingur,fagstjóri sálfélagslegrar meðferðar

Kristbjörg Kona áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Hafsteinn Sæmundsson næturvörður

Emilija Aleksandraviciene sjúkraliði

Gunnhildur Óskarsdóttir sjúkraliði

Edric Jaben læknir

Rúna Sif Harðardóttir félagsráðgjafi

Karen Birna V. Ómarsdóttir félagsráðgjafi

Helga Agnes Björnsdóttir sjúkraliði

Hildur Ósk Ragnarsdóttir áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Benedikt Guðnason áfengis og vímuefnaráðgjafi

Sara Mjöll Vatnar Skjaldardóttir áfengis og vímuefnaráðgjafi

Trausti Einarsson áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Guðný Björg Helgadóttir hjúkrunarfræðingur

Halldóra Róbertsdóttir hjúkrunarfræðinemi

Bryndís Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur, aðstoðarfagstjóri

Ael Nabetse hjúkrunarfræðingur

Sandra Kristín Björnsdóttir móttökuritari

Erla Dögg Héðinsdóttir móttökuritari

Signý Sigurðardóttir sálfræðingur

Gunnhildur Hafþórsdóttir Blöndal hjúkrunarfræðingur

Oddur Sigurjónsson áfengis og vímuefnaráðgjafi

Júlí Aspelund fagstjóri fræðslu og þjálfunar

Baldvin Þór Þorsteinsson áfengis og vímuefnaráðgjafi

Nanna Björk Elvarsdóttir áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Tinna Jónsdóttir sjúkraliði

Aníta Ösp læknir

Katla Sigríður Gísladóttir læknanemi

Vilborg Þórsdóttir sjúkraliði

Birta Dís Lárusdóttir sálfræðingur

Júlíus Fannar Pálsson næturvörður

Svanur Þorláksson áfengis og vímuefnaráðgjafi

Steingerður Björk Pétursdóttir sjúkraliði

Dagrún Þórný Marínardóttir heilbrigðisgagnafræðingur

Sigfríður Birna Sigmarsdóttir sjúkraliði

Rósa Diljá Gísladóttir hjúkrunarfræðingur

Kristín Maggý Erlingsdóttir sjúkraliði

Björn Björnsson áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Margrét Erla Þorláksdóttir áfengis og vímuefnaráðgjafi

Bjarney Rós Guðmundsdóttir félagsráðgjafi

Ólafur Guðmundsson læknir, fagstjóri lækninga

Þóra G Þórisdóttir sjúkraliði

Ólöf Kristjánsdóttir sjúkraliði

Kolbrún Brynja áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Selja Dís Jónsdóttir áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Árný Inga Guðjónsdóttir sjúkraliði

Guðbjörg Drengsdóttir sjúkraliði

Guðlaug Dóra Þorsteinsdóttir sjúkraliði

Rakel Sif deildarstjóri ritunar

Ninja Elín Maggadóttir áfengis og vímuefnaráðgjafanemi

Herdís Rún Tómasdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi

Borghildur Hauksdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi

Silja Jónsdóttir sálfræðingur

Hekla Líf Júlíusdóttir sjúkraliði

Thelma Rut Jónsdóttir sjúkraliði

#enn #hjá #sáá #upp #þykknar

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933650d/enn-thykknar-upp-hja-saa

📰 Aðrar fréttir

Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 1
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 1
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 2
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 1
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 3
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 3
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 3
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 3
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 3
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
📅 27.10.2026 👁️ 4
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
Erlendir ferðamenn eru rjúkandi reiðir eftir að hafa leigt bílaleigubíl á Íslandi. Dekkin voru í svo slæmu ástandi að þrjú þeirra sprungu á stuttum tí...
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram ...
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda....
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
📅 27.10.2026 👁️ 2
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
The trio - two of whom were high-profile US real estate moguls - were found guilty using their social status to lure women to parties and then raping ...
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
📅 27.10.2026 👁️ 4
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrae...
Trump stóreykur losun metans
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump stóreykur losun metans
Trump stóreykur losun metans Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur...
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel...
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
The truce was originally planned for the stranded residents of Oleshky, and Russia and Ukraine say no breaches have been reported.
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
📅 27.10.2026 👁️ 4
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmti...
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 4
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins

Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.Hann lést á Landspítalanum l...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart h...
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fund...
Lúðvík fannst ekki
📅 27.10.2026 👁️ 4
Lúðvík fannst ekki
Líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður í sprungu í Grindavík árið 2024, fundust ekki í leitaraðgerðum sem ráðist var í. Þeim verður ekki hal...
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
📅 27.10.2026 👁️ 1
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
Authorities in Utah used advanced DNA technology to solve the cold case decades after the notorious killer was executed.
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg í miðju ferðalagi erlendis, eftir átján og hálfs árs starf. Hún l...
Hildi sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi sagt upp hjá borginni
Hildi sagt upp hjá borginni Hildur Lilliendahl Mynd: Instagram Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda...
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
📅 27.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
Support on the cost of living, and in particular energy bills, as well as announcments on devolution will be central to John Healey's first Budget.
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
📅 27.10.2026 👁️ 3
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 4
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik

Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að  tveir leitarmenn sig...
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
📅 27.10.2026 👁️ 3
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
Gæti nýja heimildarmyndin á Netflix um Matthew Perry verið sorglegri? Höskuldarviðvörun: Ef þú vilt ekki lesa hvað kemur fram í Netflix þriggja þátta ...
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjá...
Segja barn hafa sofið í golfhermi

Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn - Vísir
Sveinn fæddist í Reykjavík 4. maí 1938. Foreldrar hans voru Eyjólfur Sveinsson (1909-1945) og Kristín Bjarnadóttir (1915-2005). Sveinn varð stúdent fr...
Fundu engar vísbendingar um hvar líkamsleifar Lúðvíks er að finna
📅 27.10.2026 👁️ 3
Fundu engar vísbendingar um hvar líkamsleifar Lúðvíks er að finna
Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Við leitina fundust e...
Fundu engar vísbendingar um líkamsleifar Lúðvíks

Landline switchover could cut people off in emergency, minister warned
📅 27.10.2026 👁️ 3
Landline switchover could cut people off in emergency, minister warned
Plans to switch to digital landlines by January could leave remote areas of the UK vulnerable, MPs say.