„Jú, það sést aðeins á toppnum á henni, það er nú allt og sumt,“ segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi. Hann fellst þó á að hér sé um árlegan haustboða að ræða. Á síðasta ári festi snjó fyrst í Esjunni að hausti í byrjun október og sagði veðurfræðingur við tilefnið að óvenju hlýju hausti væri um að kenna.
„Það er komin smá föl í Esjuna en hún gæti horfið aftur í næstu viku, það er ekki að sjá neina snjókomu á höfuðborgarsvæðinu í kortunum. Það er rigning, lægðagangur í næstu viku, djúp lægð á miðvikudaginn en svalara fyrir norðan. Það gæti gránað þar á norðurhelmingi landsins og gerir það í nótt, það er aðeins að kólna og svolítil slydda á fjallvegum fyrir norðan og á Vestfjörðum. Svo dregur úr þessu.“
Hvað varðar hita segir Þorsteinn að á höfuðborgarsvæðinu fari hann niður í þrjár til fjórar gráður á nóttina. „Á morgun fer hann alveg upp í tíu gráður. Það eru tólf gráður núna og svo hlýnar enn meira á sunnudag, verða ellefu til tólf gráður, á mánudag þrettán til fjórtán gráður.“