Aðalstjórn SÁÁ hefur verið kölluð saman til aukafundar á mánudaginn til að fjalla um vantraustsyfirlýsingu stórs hóps starfsmanna og þær kröfur sem þeir setja fram í henni.
„Yfirlýsingin er litin alvarlegum augum og ljóst er að grípa þarf til aðgerða til að byggja upp traust,“ segir í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn SÁÁ sem Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður ritar undir.
Kröfðust skýringa
Á sjöunda tug starfsmanna lýsti í dag yfir vantrausti á hendur formanni og framkvæmdastjórn samtakanna.
Vantraustsyfirlýsingin kemur eftir að forstjóri SÁÁ, fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur og framkvæmdastjóri lækninga sögðu störfum sínum lausum.
„Að okkar mati hefur starfsfólki ekki verið veitt fullnægjandi skýring á því hvernig þessi staða varð til, hvar ábyrgðin liggur eða hvernig tryggja eigi faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins til framtíðar,“ rituðu starfsmenn SÁÁ.
Þá var biðlað til aðalstjórnar að bregðast við yfirlýsingunni.
Framkvæmdastjórn segir að rödd starfsfólks SÁÁ skipti máli.
„Því telur framkvæmdastjórn mikilvægt að samtal eigi sér stað milliliðalaust með það að markmiði að leita lausna og byggja upp traust.
Við leggjum áherslu á að eiga þetta milliliðalausa samtal á uppbyggilegan hátt fremur en að há deilur á opinberum vettvangi. Fulltrúar í framkvæmdastjórn munu því ekki tjá sig opinberlega um vantraustsyfirlýsinguna fyrr en að það hefur átt sér stað.“