Hópur starfsmanna hjá Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ) lýsti í dag yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn samtakanna.
„Sú alvarlega staða sem nú er komin upp innan SÁÁ verður að okkar mati ekki skýrð sem eðlilegar breytingar í stjórnun eða einstök starfsmannamál.
Á skömmum tíma hafa lykilstjórnendur heilbrigðis- og meðferðarstarfs SÁÁ horfið frá störfum og fráfarandi stjórnendur lýst alvarlegum áhyggjum af afskiptum stjórnar af faglegu starfi samtakanna,“ stendur í yfirlýsingunni sem á sjöunda tug starfsmanna rita undir.
Stjórnendur sögðu upp störfum
Gustað hefur um SÁÁ að undanförnu.
Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur, sögðu upp störfum í ágúst.
Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, sagði því næst starfi sínu lausu. Hún sagði stjórn SÁÁ hafa skipt sér af faglegu heilbrigðisstarfi og sagðist ekki treysta sér til að vinna faglegt heilbrigðisstarf undir nýjum utanaðkomandi forstjóra.
„Brottför reynslumikilla lykilstjórnenda, samhliða alvarlegum áhyggjum þeirra af afskiptum stjórnar af faglegu starfi, kallar á skýr svör. Að okkar mati hefur starfsfólki ekki verið veitt fullnægjandi skýring á því hvernig þessi staða varð til, hvar ábyrgðin liggur eða hvernig tryggja eigi faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins til framtíðar,“ skrifa starfsmenn SÁÁ.
Segja samstöðu í hættu
Starfsmennirnir segja að áður en atburðarásin hófst hafi staðan innan SÁÁ verið góð – starfsánægja verið mikil og ríkur vilji meðal starfsfólks til að halda áfram þeirri vinnu sem hafin var.
„Það veldur okkur því miklum áhyggjum að sú uppbygging, samstaða og jákvæða þróun sem náðst hafði skuli nú vera í hættu. Við viljum fá að halda áfram á þeirri faglegu stefnu sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri sem náðst hafði undir forystu Ragnheiðar [Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra] og annarra faglegra stjórnenda.“
Þau segja að ekki sé unnt að líta fram hjá ummælum Valgerðar Rúnarsdóttur um að hún treysti sér ekki lengur til að starfa við aðstæður sem stjórn samtakanna hyggist skapa.
„Málið snýst því ekki eingöngu um ágreining einstaklinga. Það snýst um stjórnarhætti SÁÁ, faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins og framtíð þeirrar mikilvægu þjónustu sem samtökunum hefur verið treyst fyrir.“
Starfsmennirnir segja sig knúna til að bregðast við þegar ákvarðanir og stjórnarhættir „kunna að ógna faglegri samfellu, starfsfriði og trausti innan samtakanna“.
Vilja að aðalstjórn SÁÁ grípi til aðgerða
Starfsmenn óska eftir því að aðalstjórn SÁÁ taki ábyrgð formanns og framkvæmdastjórnar á þeirri atburðarás sem leitt hefur til núverandi stöðu strax til formlegrar umfjöllunar. Þá óska þeir eftir því að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða til að endurreisa traust innan samtakanna.
„SÁÁ eru ekki aðeins félagasamtök. Innan samtakanna er rekin umfangsmikil heilbrigðisþjónusta fyrir viðkvæman sjúklingahóp. Þeir sem fara með stjórn samtakanna bera því ríka ábyrgð á að ákvarðanir þeirra raski hvorki faglegu sjálfstæði né öryggi og samfellu þjónustunnar eða því trausti sem starfsemin byggist á.
Við lýsum ekki yfir vantrausti af léttúð. Við gerum það vegna þess að við teljum okkur bera skyldu til að standa vörð um sjúklinga okkar, samstarfsfólk, faglegt heilbrigðisstarf og framtíð SÁÁ.“