Almenningur virðist verða mun varari við minka en áður eftir að hundruð dýra sluppu úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal í lok júlí. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Talið er að brotist hafi verið inn og dýrunum sleppt út.
Mikill viðbúnaður var í Mosfelldal og gildrur voru settar upp á svæðinu. Fólk var hvatt til að tilkynna sínu sveitarfélagi um minka sem urðu á vegi þess.
Yfir 200 tilkynningar
Þóra Jónasdóttir yfirlæknir hjá MAST fundaði með Mosfellsbæ í vikunni um stöðu mála. Hún segir að Mosfellsbæ hafi borist yfir 200 tilkynningar um minka en aðeins þriðjungur þeirra hafi verið innan bæjarmarkanna.
„Það bárust tilkynningar um minka til Mosfellsbæjar allt frá Vestfjörðum til Vestmannaeyja. Ég tel engar líkur á að eldisminkurinn myndi ferðast svona langt. Hann er yfirleitt hálfklunnalegur og ekki mikið fyrir langar vegalengdir,“ segir Þóra.
Aðeins ein ábending sem barst reyndist vera eldisminkur. „Það er alltaf farið og kannað ef ábendingin er innan sveitarfélagsins. Oft voru þetta kannski plastpokar eða köttur eða annað en fólk var auðvitað bara að tilkynna um grun.“
Mikil skemmdaverk framin á búinu
Mast hefur aðeins fengið eina ábendingu um mink frá því að málið kom upp. Stofnunin sinnir núna fyrst og fremst eftirliti.
„Að varnir séu eins og gert er ráð fyrir í regluverkinu, það er að það séu tvöfaldar varnir og dýrin sleppi ekki út. Það var mikið skemmdaverk framið þarna og það þarf að ganga úr skugga um að allt sé eins og það eigi að vera. Við erum líka að passa upp á velferð dýranna sem náðist að fanga og eru aftur komin í búr. Þetta var töluvert álag á dýrin og sum hver slösuðust eða lentu í slagsmálum.“
Þóra segir eðlilegt að fólk vilji láta vita þegar það verði vart við minka enda vakti málið í Mosfellsdal mikla athygli. Litlar líkur séu þó á að eldisminkurinn hafi ferðast langt út fyrir Mosfellsbæ.
„Það eru mestar líkur á að sjá villtan mink núna, frá ágúst og út september. Á þessum árstíma eru villtir minkahvolpar á ferli og því mikilvægt að almenningur sé vakandi fyrir ferðum þeirra.“
Fólk er hvatt til að tilkynna sínu sveitarfélagi um minka sem verða á vegi.