Fjöldi fólks mætti við Breiðumýri 8 á Selfossi í morgun þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips tók fyrstu skóflustunguna af nýju dreifingar- og þjónustumiðstöðinni. Um er að ræða 1.290 fermetra dreifingarmiðstöð á rúmlega 10.000 fermetra lóð sem býður upp á verulegt svigrúm til frekari uppbyggingar og stækkunar í takt við vaxandi umsvif á Suðurlandi.
Vilhelm Már er mjög ánægður með að framkvæmdir geti nú hafist á lóðinni en húsið kemur frá Landstólpa í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
„Miðstöðin er hugsuð til þess að þjónusta þessu mjög svo vaxandi svæði hérna í kringum Selfoss og Suðurlandsundirlendið og uppsveitir Árnessýslu og svoleiðis,” segir Vilhelm.
„Við erum að fara að byggja hérna býsna stórt hús, fullkomið með kæli og frysti og við hugsum fyrir öllu varðandi framtíðina með orkuskipti og sjáum fyrir okkur að innan mjög skamms tíma þegar við tökum húsið í notkun í ágúst eða september á næsta ári að hérna fari allir bílar og trukkar til og frá á rafmagni,” bætir Vilhelm við.
Í dag vinna 15 starfsmenn hjá Eimskip á Selfossi en heildarstarfsmannafjöldi fyrirtækisins er um 1.800 í nokkrum löndum, þar af um 100 starfsmenn í Kína.
Hvað kostar svona hús?
„Það kostar hátt í milljarð að standsetja þetta allt saman en við trúum því að þetta sé rétta skrefið á þessu svæði,” segir Vilhelm.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg er að sjálfsögðu mjög ánægður með þær framkvæmdir sem eru að fara af stað hjá Eimskip á Selfossi.
„Það er bara mjög ánægjulegt að það sé fyrirtæki hér á svæðinu sem vilji vaxa og dafna og efla starfsemina á svæðinu. Við fögnum þessum degi virkilega,” segir Bragi.