Icelandair segist hafa lagt fram samningstilboð í viðræðum sínum við Flugvirkjafélag Íslands. „Og getur ekki gengið lengra í þeim efnum en kröfur Flugvirkjafélagsins eru langt umfram það sem gengur og gerist í samfélaginu,“ segir í tilkynningu frá flugfélaginu.
Kjaraviðræður flugvirkja við Icelandair hafa staðið yfir síðan í lok síðasta árs án árangurs. Samtök Atvinnulífsins og Icelandair vísuðu deilunni til ríkissáttasemjara 13. febrúar.
Flugvirkjar í Flugvirkjafélagi Íslands (FVFÍ) sem starfa hjá Icelandair greiða nú atkvæði um hvort fara eigi í verkfallsaðgerðir. Atkvæðagreiðsla hefst í dag og stendur fram á mánudag.
Í yfirlýsingu Icelandair segir að flugfélagið harmi að FVFÍ hafi hrundið af stað atkvæðagreiðslu um ótímabundið allsherjarverkfall.
„Verði það samþykkt mun það leiða til mikilla raskana og fljótlega stöðvunar á flugáætlun Icelandair en septembermánuður er háannatími. Á þessum tíma eru flug í áætlunarflugi um 110 að meðaltali á degi hverjum og fjöldi farþega um 15 þúsund á dag.“
Icelandair segir aðstæður í rekstrarumhverfinu enn fremur hafa verið krefjandi um langa hríð – meðal annars vegna hás eldsneytisverðs.
Kæmi til verkfalls myndu áhrifin ná langt út fyrir starfsemi Icelandair, segir félagið.
„Þúsundir farþega yrðu fyrir röskun og áhrifin yrðu veruleg á íslenska ferðaþjónustu, útflutningsgreinar og fjölmörg fyrirtæki sem reiða sig á öflugar flugsamgöngur. Slíkar aðgerðir á háannatíma myndu því ekki aðeins valda farþegum óþægindum og Icelandair tjóni, heldur einnig hafa víðtæk áhrif á íslenskt atvinnulíf, hagkerfið og samfélagið í heild.“