Ekki einn heldur nokkrir danskir sæðisbankar eru til rannsóknar lögreglu. Danska ríkisútvarpið DR greindi frá því í gær að einn stærsti sæðisbanki landsins, Evrópski sæðisbankinn, væri til rannsóknar lögreglu eftir að í ljós kom að sæði 81 gjafa hefði verið notað í ólöglegu magni þar í landi.
Frá 2013 hafa verið í gildi lög í Danmörku sem kveða á um að allt að tólf konur megi nota sama sæðisgjafann. Í tilfelli þessara 81 gjafa voru þeir notaðir af allt frá 13 og upp í 30 konum í Danmörku.
Ida Auken, heilbrigðisráðherra Danmerkur, upplýsti í viðtali við DR í dag að Evrópski sæðisbankinn væri ekki eini sæðisbankinn í Danmörku sem væri til rannsóknar lögreglu. Hún vildi ekki veita frekari upplýsingar um hverjir hinir sæðisbankarnir væru.
Auken segir tímabært að taka til í málaflokknum og líkir ástandinu við villta vestrið. Samkvæmt henni varða málin í einhverjum tilfella mjög alvarleg brot.
„Ég get lofað því að nú verður þetta rannsakað mjög ítarlega. Lögreglan er komin í málið og nú tökum við á þessu vegna þess að þetta ástand gengur einfaldlega ekki lengur.“
Öryggisstofnun sjúklinga í Danmörku, STP, vinnur að úttekt á frjósemisiðnaðinum þar í landi. Úttektin hófst í desember í fyrra, eftir umfjöllun um danska sæðisgjafann Kjeld. Málið tengdi anga sína meðal annars til Íslands. Kjeld var sæðisgjafi hjá Evrópska sæðisbankanum og fleiri en 200 börn voru getin með sæði hans áður en það kom í ljós að hann bar með sér sjaldgæfa genastökkbreytingu sem eykur verulega líkurnar á krabbameini.
Auken segir að ráðuneytið bíði nú úttektarinnar til að meta hvort og þá hvernig löggjöf og eftirlit með fyrirtækjum á þessu sviði verði hert.
Starfsemi sem veltir milljörðum
Danmörk er ein stærsta útflutningsþjóð heims þegar kemur að gjafasæði og fyrirtæki á þessu sviði velta milljörðum á ári hverju. Í Danmörku er að finna nokkra af stærstu og þekktustu sæðisbönkum í heiminum, Cryos International og European Sperm bank. Íslensku frjósemisstofurnar tvær, Sunna og Livio, eru báðar í samstarfi við danska sæðisbanka.