Á sjöunda tug starfsmanna SÁÁ lýsa yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn samtakanna eftir að þrír stjórnendur sögðu upp störfum. Draga hefur þurft úr fjölda innlagna á Vog og starfsfólk upplifir óvissu og óánægju.
„Við höfum auðvitað gríðarlegar áhyggjur af stöðunni, þessum lykilstarfsmönnum sem við höfum misst úr starfseminni síðustu vikur og þessum alvarlegu og óeðlilegu afskiptum sem þær hafa lýst í fjölmiðlum,“ segir Elín Þórdís Meldal aðstoðarfagstjóri á Vogi.
Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, sagði upp störfum í ágúst. Þá sagði fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur starfi sínu lausu og því næst Valgerður Rúnarsdóttir framkvæmdastjóri lækninga. Hún lýsti óeðlilegum afskiptum stjórnar af faglegu starfi.
Elín segir starfsfólk upplifa að það fái ekki skýr svör frá stjórninni, formanni SÁÁ eða núverandi æðsta yfirmanni. „Það er ekki traustvekjandi fyrir neinn fyrir utan það að starfsfólk var búið að vera mjög ánægt með störf forstjóra fram að þessu. Þetta kom okkur öllum gríðarlega á óvart,“ segir hún.
„Er það raunverulega forsvaranlegt?“
Elín segir skiptar skoðanir á málinu hjá starfsfólki en stór hluti þess telji óeðlilegt að framkvæmdastjórn félagasamtaka hafi afskipti af störfum forstjóra sem er faglega ráðinn.
„Er það og er það raunverulega forsvaranlegt? Gengur það upp að forstjóri, sem stýrir meðferðarsviði og hefur utanumhald um faglegt starf, að þessi samtök séu að hafa eftirlit með því?“
Starfsfólk upplifir aukið álag og óvissu en staðan hefur líka áhrif á meðferðarstarfið. Núna eru einungis þrír starfandi læknar á Vogi.
„Það er verið að draga úr innlagnafjölda skjólstæðinga vegna þess að það eru takmörk fyrir því hvað hver og einn læknir má bera ábyrgð á mörgum þannig að vissulega hefur þetta áhrif á starfsemina,“ segir Elín.
Í yfirlýsingunni, sem 63 starfmenn skrifa undir, er lýst yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn. Áður en forstjórinn hætti hafi staðan innan SÁÁ verið góð og starfsánægja mikil.
„Við viljum að aðalstjórn stígi inn í og taki málið til skoðunar og hlusti á hvaða áhyggjur við höfum og óskir framvegis. Að starfsemin fái að fara aftur í það góða horf sem hún var í með þessu góða fólki sem við erum búin að missa,“ segir Elín.
Aðalstjórn kölluð á aukafund eftir helgi
Í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn SÁÁ segir að aðalstjórn hafi verið kölluð til aukafundar á mánudag til að fara yfir yfirlýsingu starfsmanna og þær kröfur sem þar eru settar fram.
„Yfirlýsingin er litin alvarlegum augum og ljóst er að grípa þarf til aðgerða til að byggja upp traust,“ segir í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn SÁÁ sem Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður ritar undir.