Heilsuhagfræðingurinn Gunnar Alexander Ólafsson leggur til að Íslendingar reisi styttu af Halldóri Laxness. Einnig að þeim Íslendingum sem náð hafa langt á erlendri grundu verði gert hátt undir höfði í Leifsstöð.„Hver er okkar Napóleon Bónaparte?“ spyr Gunnar í aðsendri grein á Vísi í dag.Reifar hann að örstutt frá miðbæ Ajaccio á Korsíku, fæðingarbæjar Napóleons, sé tröllvaxin stytta af honum. Þessi stytta dregur til sín fjölda ferðamanna.
Gunnar vill styttu af Halldóri Laxness á Lækjartorg - „Hver er okkar Napóleon Bónaparte?“