Marinó G. Njálsson ráðgjafi segir það sé blekking að tala um kaupmátt sem mælikvarða á velmegun, þess í stað þurfi að spyrja hvort ráðstöfunartekjur fólks dugi fyrir nauðþurftum. Í ítarlegri grein á Facebook segir Marinó að mikið hafi verið rætt um kjör landsmanna í aðdraganda þjóðarkvæðagreiðslunnar nýverið um aðildarviðræður við Evrópusambandið, þá hafi komið fram í umræðunni að það skipti litlu máli þó matvælaverð á Íslandi væri hátt þar sem ráðstöfunartekjur Íslendinga væru mun betri í þeim ríkjum þar sem matvælaverð er lágt.
Marinó: Blekking að tala um kaupmátt sem mælikvarða á velmegun