44 slösuðust og þar af einn alvarlega þegar lest fór út af sporinu í Frakklandi í dag.
Lestin var á leið milli Rúðuborgar og Caen í Normandí-héraði með 186 farþega um borð. Hún fór út af sporinu rétt fyrir klukkan átta á staðartíma. Neyðaráætlun vegna fjöldaslysa var virkjuð og 130 slökkviliðsmenn, fimm læknateymi og 80 ökutæki voru send á vettvang.
„Skyndilega komu nokkrir kippir. Í fyrstu hélt ég að þetta væri eðlilegt en svo eftir um þrjár sekúndur urðu þeir sífellt sterkari,“ sagði einn farþeganna, hinn 24 ára Louis, í samtali við ICI Normandie.
„Ég gat ekki lengur haldið mér í sætinu,“ sagði hann. „Rúðurnar brotnuðu að hluta til og steinar af teinunum komu inn í vagninn. Þetta var virkilega mikið áfall. Ég skelf enn þá.“
44 eru slasaðir, þar á meðal 18 ára stúlka sem er lífshættulega slösuð og var flutt af vettvangi í þyrlu. Þetta segir Sebastien Gallois, saksóknari í Rouen. Ekki liggur fyrir hvers vegna lestin fór út af sporinu en yfirvöld rannsaka orsök slyssins.
Lestarstjórinn stóðst áfengis- og vímuefnapróf að sögn Gallois.
SNCF, sem stjórnar franska járnbrautakerfinu, tilkynnti að truflanir væru á ferðum um svæðið. Umferð á línunni var stöðvuð og rafmagnið tekið af teinunum til að neyðarþjónusta gæti starfað. „Forgangsatriðið er að sinna farþegunum og koma síðan á öruggum rekstrarskilyrðum á ný,“ er haft SNCF í frétt AFP.