Allir flokkar sem bjóða fram í þingkosningum í Svíþjóð mættust í síðustu kappræðunum fyrir kosningar í kvöld á sænska ríkisútvarpinu SVT.
Það var mikill hiti í kappræðunum. Magdalenu Andersson, leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins og fyrrverandi forsætis- og efnahagsráðherra, var ekki skemmt þegar Simona Mohamsson, mennta- og inngildingaráðherra og leiðtogi Frjálslynda flokksins, greip fram í fyrir henni.
„Nei, nei, stopp, stopp, hún getur ekki gripið svona fram í fyrir mér svo ég fái ekki að ljúka máli mínu,“ sagði Andersson. „Það verður að vera einhver helvítis regla á þessu.“
Umræðuefni kvöldsins voru efnahags-, mennta- og umhverfismál, afbrota- og heilbrigðismál og inngilding.
Bilið milli fylkinga hefur minnkað
Efnahagsmálin réðu ríkjum í fyrri hluta kappræðnanna. Mats Knutson, stjórnmálaskýrandi SVT, segir bilið milli fylkinga hafa minnkað síðustu vikur. „Sérstaklega þegar formenn flokkanna ræddu efnahagsmálin. Það snerist mikið um skatta og ásakanir gengu á víxl,“ segir Knutson.
Magdalena Andersson sakaði ríkisstjórnina um að hafa lækkað skatta á þá ríku í stað þess að fjárfesta í atvinnuskapandi aðgerðum á meðan ríkisstjórnarflokkarnir, eða hægriblokkin, vöruðu við miklum skattahækkunum vinni stjórnarandstaðan kosningarnar.
„Það sést mjög greinilega hér hvernig skattamálin skilgreina hægri og vinstri í sænskum stjórnmálum,“ segir Knutson. „Það urðu harðar umræður einmitt um skattana. Einnig var hart rætt um lög og reglu.“
Svíar ganga til kosninga á sunnudaginn og kannanir sýna að spennan verði meiri en lengi leit út fyrir.
Hægri borgaralega blokkin fékk nauman meirihluta í kosningunum 2022. Í sumar mældist rauðgræna blokkin með tíu prósentustiga forskot og virtist eiga sigurinn vísan en í síðustu könnun var forskot rauðu blokkarinnar aðeins rúm tvö prósent.