Þing­kosningar í Sví­þjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt - Vísir

Þing­kosningar í Sví­þjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt - Vísir

Þing­kosningar í Sví­þjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt - Vísir

Þingkosningar fara fram í Svíþjóð á sunnudag en þær fara að jafnaði fram á fjögurra ára fresti. Ólíkt okkur Íslendingum kjósa Svíar samtímis til svæðis- og sveitarstjórna og skila því þremur atkvæðaseðlum í kjörkassana.

Síðustu fjögur ár hefur minnihlutastjórn hægriflokka verið við völd í Svíþjóð með Ulf Kristersson, formann Moderaterna, í forystu en segja má að Moderaterna séu systurflokkur Sjálfstæðisflokksins hér á landi. Auk Moderaterna eiga Frjálslyndi flokkurinn og Kristilegir demókratar sæti við ríkisstjórnarborðið.

Amanda Lind og Daniel Helldén

Talsmenn Græningja

Ebba Busch

Orku- og iðnaðarráðherra og formaður Kristilegra demókrata

Elisabeth Thand Ringqvist

Formaður Miðflokksins

Jimmie Åkesson

Formaður Svíþjóðardemókrata

Magdalena Andersson

Formaður Sósíaldemókrata

Nooshi Dadgostar

Formaður Vinstriflokksins

Simona Mohamsson

Menntamálaráðherra og formaður Frjálslynda flokksins

Ulf Kristersson

Forsætisráðherra og formaður Moderaterna

Fjarhægriflokkurinn Svíþjóðardemókratar ver síðan stjórnina falli og er það hluti af svokölluðu Tidö-samkomulagi sem undirritað var eftir síðustu kosningar. Flokkurinn situr ekki í ríkisstjórninni sjálfri en í gegnum áðurnefnt samkomulag nær hann að koma hluta af sínum baráttumálum þar í gegn.

Beinagrindurnar í skápnum

Svíþjóðardemókratar hafa aldrei verið hluti af ríkisstjórn Svíþjóðar og í raun var það fyrst við undirritun áðurnefnds Tidö-samkomulags sem flokkurinn varð hluti af meirihlutasamstarfi. Flokkurinn var stofnaður árið 1988 og hafði þá skýr tengsl við hreyfingar nýnasista en árið 1995 hófst tilraun til hreinsunar innan hans raða. 

Rannsókn sænska ríkisins sem gerð var árið 2012 komst að þeirri niðurstöðu að flokkurinn hafi lagt sig fram við að hreinsa gamlar beinagrindur úr skápnum en ekki tekist það fullkomlega. Reglulega hafa komið upp hneykslismál tengd háttsettum aðilum innan flokksins þó þeim hafi fækkað með tímanum.

Jimmie Åkesson hefur verið formaður Svíþjóðardemókrata. Hann er gallharður landsbyggðarliðsins Mjällby í sænska boltanum en liðið varð afar óvænt sænskur meistari á síðasta ári.Vísir/Getty

Nýlega kom til dæmis í ljós að starfsmaður flokksins hafði deilt áróðri frá rússneskum stjórnvöldum og jafnframt sótt um störf hjá stjórnarráði Svía með beintengingu við Rússland. 

Núverandi formaður Jimmie Åkesson hefur setið í formannssætinu allt frá árinu 2005 en í kosningunum fimm árum síðar náði flokkurinn í fyrsta sinn mönnum inn á sænska þingið, Riksdagen.

Hafa hvatt kjósendur til að kjósa annan flokk

Það er ekki að ástæðulausu að saga Svíþjóðardemókrata er sögð í stuttu máli hér að ofan. Sagan og tengingin við hreyfingar nýnasisma gera það að verkum að forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna Sósíaldemókrata, Græningja, Miðflokksins og Vinstriflokksins hafa útilokað algjörlega samstarf með Svíþjóðardemókrötum.

Jafnframt var Frjálslyndi flokkurinn lengi vel tregur í taumi hvað varðar samstarf við flokk Åkesson en nýr formaður Frjálslyndra, Simona Mohamsson menntamálaráðherra, opnaði þær dyr upp á gátt í kjölfar þess að hún tók við formennsku síðasta sumar. Í vor tilkynnti hún síðan að Frjálslyndir myndu ekki setja sig á móti því að sitja í ríkisstjórn þar sem fulltrúar Svíþjóðardemókrata myndi skipa ráðherraembætti.

Simona Mohamsson, formaður Frjálslynda flokksins, sést hér ásamt Nooshi Dagostar, formanni Vinstri flokksins, á leiðtogaumræðum TV4 sjónvarpsstöðvarinnar í gær.Vísir/AP

Þetta útspil orsakaði flótta úr flokknum og lengi vel hefur hann mælst undir 4 prósentum en það er lágmarkið sem þarf til að ná inn þingmanni. Síðustu daga hefur flokkurinn þó mælst inni á þingi og gæti þar haft áhrif að Jimmie Åkesson hvatti stuðningsmenn Svíþjóðardemókrata til að kjósa taktískt og tryggja að Frjálslyndi flokkurinn næði manni á þing.

Það bendir því allt til þess að haldi ríkisstjórnin velli muni Svíþjóðardemókratar ekki bara vera stuðningsflokkur í samstarfi hægri flokkanna heldur fái ráðherrasæti við ríkisstjórnarborðið.

Myndun vinstri stjórnar gæti reynst flókin

Rík hefð er fyrir svokallaðri blokkapólitík í Svíþjóð. Það þýðir að fyrir kosningar er nokkuð ljóst hvaða flokkar muni vinna saman nái þeir meirihluta atkvæða. Hægriblokkin samanstendur af núverandi ríkisstjórnarflokkum en vinstriblokkina mynda Sósíaldemókratar, Miðflokkurinn, Græningjar og Vinstriflokkurinn.

Málið er þó ekki alveg svo einfalt því Miðflokkurinn, sem segja má að sé systurflokkur Framsóknarflokksins hér á landi, hefur útilokað að starfa í ríkisstjórn með Vinstriflokknum og sagt hann öfgaflokk. Vinstriflokkurinn þurfti meðal annars nýlega að stroka frambjóðendur af listum flokksins sem vegna hatursfullra ummæla sem fallið höfðu um gyðinga.

Í raun hafa forystumenn Miðflokksins og Vinstriflokksins hnakkrifist fyrir opnum tjöldum nú í aðdraganda kosninga og þó ríkisstjórnin falli, líkt og skoðanakannanir benda til, gæti orðið erfitt fyrir Magdalenu Andersson formann Sósíaldemókrata að mynda ríkisstjórn. 

Elisabeth Thand Ringqvist, formaður Miðflokksins, hefur til að mynda sagt að hún vilji heldur að kosið verði að nýju frekar en að Vinstriflokkurinn fái sæti við ríkisstjórnarborðið. Óljóst er hins vegar hvort Miðflokkurinn vilji sitja í stjórn sem Vinstriflokkurinn styður með svipuðu fyrirkomulagi og hjá núverandi stjórn. 

Líklegt er að Magdalena Andersson verði forsætisráðherra Svíþjóðar í kjölfar kosninganna en flókið gæti reynst að mynda ríkisstjórn.Vísir/AP

Ringqvist hefur síðustu vikur daðrað við Ebbu Busch, formann Kristilegra demókrata, og sagt opinberlega að hún sé tilbúin að mynda ríkisstjórn sem samanstandi af þeim flokkum ásamt Sósíaldemókrötum og Græningjum en til að þessi staða raungerist þyrftu Kristilegir demókratar að skipta um lið, frá hægriblokkinni og yfir til vinstri. 

Erfitt er að sjá það gerast en þó eru fordæmi fyrir slíku. Í kosningunum 2018 náði til dæmis hvorki hægri- né vinstri blokkin meirihluta og eftir stjórnarkreppu um haustið var mynduð ríkisstjórn Sósíaldemókrata og Græningja, studd af Frjálslyndum og Miðflokknum.

Hefur dregið saman á milli blokkanna

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem birtist í morgun mælist vinstriblokkin með 50,8 prósent atkvæða en hægriblokkin 47,6 prósent. Verði þetta raunin er ljóst að stjórnin mun falla en þróunin síðustu vikur sýnir að dregið hefur saman á milli blokkanna tveggja.

Stærstu fréttirnar eru hins vegar þær að Frjálslyndi flokkurinn mælist með 5,4 prósent og er því nokkuð örugglega kominn yfir fjögurra prósenta línuna sem þarf til að komast inn í Riksdagen. Verði það raunin aukast lífslíkur ríkisstjórnarinnar umtalsvert.

Fylgi flokkanna samkvæmt skoðanakönnun sem birt var 11. september 2026. Niðurstaða kosninganna 2022 er í sviga fyrir aftan.

Frjálslyndi flokkurinn: 5,4% (4,6%)

Græningjar 6,9% (5,1%)

Kristilegir demókratar 7,1% (5,3%)

Miðflokkurinn 7,5% (6,7%)

Moderaterna 16,8% (19,1%)

Sósíaldemókratar 28,6% (30,3%)

Svíþjóðardemókratar 18,3% (20,5%)

Vinstriflokkurinn 7,8% (6,8%)

Reyndar hafa Frjálslyndir töluverðar áhyggjur af því að þeir sem kusu utankjörfundar hafi mögulega gleymt þeim en það kemur í ljós þegar talið verður upp úr kjörkössunum.

Sósíaldemókratar eru og verða langstærsti flokkurinn en 28,6 prósent fylgi er engu að síður minna en í kosningunum fyrir fjórum árum. Moderaterna hoppa eflaust ekki heldur hæð sína í loft upp yfir þessum tölum því 16,8 prósenta fylgið þeirra er rúmum tveimur prósentum minna en fyrir fjórum árum og enn eru þeir minni en Svíþjóðardemókratar Jimmie Åkesson.

Fylgi flokkanna samkvæmt skoðanakönnun sem birt var 11. september 2026. Niðurstaða kosninganna 2022 er í sviga fyrir aftan.

Frjálslyndi flokkurinn: 5,4% (4,6%)

Græningjar 6,9% (5,1%)

Kristilegir demókratar 7,1% (5,3%)

Miðflokkurinn 7,5% (6,7%)

Moderaterna 16,8% (19,1%)

Sósíaldemókratar 28,6% (30,3%)

Svíþjóðardemókratar 18,3% (20,5%)

Vinstriflokkurinn 7,8% (6,8%)

#riðar #stjórnin #svíþjóð #til #þingkosningar

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933190d/thingkosningar-i-svithjod-stjornin-ridar-til-falls-en-ad-mynda-nyja-gaeti-reynst-erfitt

📰 Aðrar fréttir

Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 1
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 1
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 2
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 1
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 3
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 3
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 3
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 3
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 3
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
📅 27.10.2026 👁️ 4
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
Erlendir ferðamenn eru rjúkandi reiðir eftir að hafa leigt bílaleigubíl á Íslandi. Dekkin voru í svo slæmu ástandi að þrjú þeirra sprungu á stuttum tí...
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram ...
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda....
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
📅 27.10.2026 👁️ 2
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
The trio - two of whom were high-profile US real estate moguls - were found guilty using their social status to lure women to parties and then raping ...
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
📅 27.10.2026 👁️ 4
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrae...
Trump stóreykur losun metans
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump stóreykur losun metans
Trump stóreykur losun metans Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur...
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel...
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
The truce was originally planned for the stranded residents of Oleshky, and Russia and Ukraine say no breaches have been reported.
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
📅 27.10.2026 👁️ 4
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmti...
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 4
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins

Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.Hann lést á Landspítalanum l...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart h...
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fund...
Lúðvík fannst ekki
📅 27.10.2026 👁️ 4
Lúðvík fannst ekki
Líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður í sprungu í Grindavík árið 2024, fundust ekki í leitaraðgerðum sem ráðist var í. Þeim verður ekki hal...
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
📅 27.10.2026 👁️ 1
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
Authorities in Utah used advanced DNA technology to solve the cold case decades after the notorious killer was executed.
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg í miðju ferðalagi erlendis, eftir átján og hálfs árs starf. Hún l...
Hildi sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi sagt upp hjá borginni
Hildi sagt upp hjá borginni Hildur Lilliendahl Mynd: Instagram Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda...
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
📅 27.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
Support on the cost of living, and in particular energy bills, as well as announcments on devolution will be central to John Healey's first Budget.
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
📅 27.10.2026 👁️ 3
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 4
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik

Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að  tveir leitarmenn sig...
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
📅 27.10.2026 👁️ 3
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
Gæti nýja heimildarmyndin á Netflix um Matthew Perry verið sorglegri? Höskuldarviðvörun: Ef þú vilt ekki lesa hvað kemur fram í Netflix þriggja þátta ...
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjá...
Segja barn hafa sofið í golfhermi

Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn - Vísir
Sveinn fæddist í Reykjavík 4. maí 1938. Foreldrar hans voru Eyjólfur Sveinsson (1909-1945) og Kristín Bjarnadóttir (1915-2005). Sveinn varð stúdent fr...
Fundu engar vísbendingar um hvar líkamsleifar Lúðvíks er að finna
📅 27.10.2026 👁️ 3
Fundu engar vísbendingar um hvar líkamsleifar Lúðvíks er að finna
Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Við leitina fundust e...
Fundu engar vísbendingar um líkamsleifar Lúðvíks

Landline switchover could cut people off in emergency, minister warned
📅 27.10.2026 👁️ 3
Landline switchover could cut people off in emergency, minister warned
Plans to switch to digital landlines by January could leave remote areas of the UK vulnerable, MPs say.