Philippe Tabarot, samgönguráðherra Frakklands, segir að 180 farþegar hafi verið um borð í lestinni sem var á leið milli borganna Rúðu og Caen í Normandí.
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu. Þá hafi 140 slökkviliðsmenn og aðrir viðbragðsaðilar verið sendir á slysstað sem sé nærri Cléon, rétt sunnan við Rúðu.
Ekki liggur fyrir hvers vegna lestin fór út af sporinu að svo stöddu. Yfirvöld á svæðinu virkjuðu fjöldaslysaáætlun eftir að slysið átti sér stað skömmu fyrir klukkan 18:00 að íslenskum tíma.
Birtar hafa verið ljósmyndir sem sýna farþega yfirgefa lestina eftir að hún fór út af sporinu. Þrír lestarvagnar fóru á hliðina, að sögn franskra fjölmiðla.
SNCF, ríkisjárnbrautarfyrirtæki Frakklands, tilkynnti að „verulegar truflanir“ væru á ferðum um svæðið. Notast yrði við rútur til að flytja farþega í staðinn.