Úrslitaleikur í Mjólkurbikarnum fer fram í kvöld þar sem Bestudeildarlið Breiðabliks og Afturelding sem var Lengjudeildarmeistari á dögunum eigast við. Breiðablik hefur einu sinni orðið bikarmeistari og leikið þrisvar til úrslita en Mosfellingar leika til bikarúrslita í fyrsta sinn, í leit að sínum fyrsta stóra titli.
Hanna Símonardóttir var spenntari en flestir þegar hún leit við í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í dag þó svo að hún vissi fyrir fram að hún yrði móðir bikarmeistara í kvöld. Hún á son í báðum liðum, þjálfara Aftureldingar Magnús Má og markvörð Breiðabliks, Anton Ara en þeir eru Einarssynir.
Hanna segir bræðurna hafa haft ástríðu fyrir fótbolta frá ungaaldri og Magnús hafi sent litla bróður sinn, Anton Ara, í markið aðeins fjögurra ára gamlan.
Hlustaðu á spjallið hér fyrir ofan.
„Hann setti Anton í markið þegar hann var fjögurra ára“