Hættulegar aðstæður geta skapast á Svínvetningabraut í Húnabyggð. Vegurinn er í verulega slæmu ásigkomulagi og hefur slitlag flest af honum á löngum köflum. Vegurinn er mikið ekinn dag hvern og þarfnast endurbóta sem fyrst segir sveitarstjóri.
„Þetta er bara mjög bagalegt og svörin sem ég hef fengið frá Vegagerðinni er að þetta sé í skoðun og eigi að laga en það bara gerist ekki neitt og þess vegna er staðan eins og hún er núna,“ segir Pétur Arason, sveitarstjóri í Húnabyggð.
Getur skapað hættulegar aðstæður
Mikil umferð er um veginn. Skólabíllinn keyrir þarna daglega og foreldrar keyra börn sín til og frá leikskóla. Þá er Blönduvirkjun í næsta nágrenni með tilheyrandi umferð, enda einn stærsti vinnustaður sveitarfélagsins.
Í svari Vegagerðarinnar um fyrirhugaðar framkvæmdir á Svínvetningabraut segir að þær hefjist strax í haust. Nýlega fékkst fjármagn til verksins. Leggja á nýja klæðingu á hluta vegarins og styrkja burðarlag.
„Hér eru holur og getur skapað hættur. Bílarnir að renna til og annað. En svo þegar þú ert að mæta bílum geta skapast mjög hættulegar aðstæður. Það er laus möl út í köntunum og molnað malbik. Þetta er á alla vegu ekki ásættanlegt,“ segir Pétur.