Hafnarfjarðarbær hét Tækniskólanum lóð fyrir nýja skólabyggingu sem er þegar í notkun fyrir aðra starfsemi. Ljóst er að framkvæmdir tefjast. Forsvarsmenn Tækniskólans hafa rætt óformlega við önnur sveitarfélög um að skólinn verði þar.
Nýja Tækniskólanum er ætlaður staður við Flensborgarhöfn, á lóð sem afmarkast af Óseyrarbraut, Fornubúðum og Cuxhavengötu. Á þessu svæði standa byggingar, meðal annars stórt hús við Cuxhavengötu 1.
Og áformin, um að til stæði að reisa 30.000 fermetra skóla í stað húsanna kom eigendum þeirra í opna skjöldu.
Lásu um áformin í blöðunum
„Við lásum bara um þessi áform í blöðunum,“ segir Ólafur Steinarsson einn þeirra sem á húsið við Cuxhavengötu 1. „Og það var ekkert talað við okkur í marga, marga mánuði.“
Ólafur segir að Hafnarfjarðarbær hafi síðan boðið sér og öðrum húseigendum á svæðinu að kaupa eignir þeirra, en ekki boðið ásættanlegt verð.
„Undir fasteignaverði í sumum tilfellum,“ segir hann. „Að okkar mati var það ekki aðgengilegt. Við höfum verið jákvæð um að ná samningum, en það hefur bara ekkert náðst saman.“
Ólafur segir fasteignaeigendurna ekkert hafa heyrt neitt frá Hafnarfjarðarbæ síðan fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Talsverð uppbygging stendur til í þessu hverfi bæjarins sem meðal annars tekur mið af því að þarna rísi skólinn, og deiliskipulag vegna skólans var samþykkt í vor. Ólafur hefur kært deiliskipulagið til Úrskurðarnefndar auðlinda- og skipulagsmála og bíður svars.
Segir þetta freklega stjórnsýslu
„Eins og þetta lítur út fyrir mér er þessi ákvörðun tekin um að þetta eigi að vera þarna og aðrir staðir ekkert skoðaðir og svo er keyrt á málið á hnefanum.“
Mér finnst þetta mjög frekleg stjórnsýsla. Ég get ekki ímyndað mér að svona teljist til eðlilegrar stjórnsýslu. Það er hvorki hægt að bjóða lögaðilum né einstaklingum upp á svona framkomu.
Hvernig heldurðu að þessu muni vinda fram? „Ég held að bærinn sé búinn að skuldbinda sig mjög mikið gagnvart Tækniskólanum fjárhagslega, það er búið að eyða miklum fjármunum í alla þessa vinnu.“
Hafa rætt við önnur sveitarfélög um lóð fyrir Tækniskólann
Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa stjórnendur Tækniskólans átt óformlega fundi með bæjaryfirvöldum í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um lóð fyrir Tækniskólann.
Hönnun skólans átti að hefjast um síðustu áramót, en hefur tafist vegna þessara aðstæðna.
Hvorki stjórnendur skólans né bæjarstjórinn í Hafnarfirði gáfu kost á viðtali.