Dýraverndarsamband Íslands, Samtök um dýravelferð á Íslandi og tíu erlend félagasamtök freista þess að fá heimild til blóðmerahalds fellda úr gildi. Samtökin hafa sent atvinnuvegaráðuneytinu kvörtun og krefjast þess að ákvörðun Matvælastofnunar um leyfisveitinguna verði felld úr gildi.
Fallist ráðuneytið ekki á þetta krefjast samtökin þess að ákvörðunin verði endurskoðuð með hliðsjón af lögum um velferð dýra og reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.
Samtökin segja að blóðtaka í blóðmerahaldi fari langt umfram alþjóðleg viðmið og gangi nærri heilsu og velferð hryssanna.