Saksóknarar í Suður-Kóreu fara fram á eins árs fangelsi yfir eiganda veitingahúss með tvær Michelin-stjörnur fyrir að nota maura í eftirrétt.
Ástæðan er sú að maurar eru ekki á meðal þeirra tíu skordýrategunda sem leyfilegar eru til manneldis samkvæmt suðurkóreskum lögum.
Saksóknarar hafa einnig farið fram á að veitingastaðurinn verði sektaður um tvö milljón kóresk vonn, það jafngildir 1,7 milljónum króna.
Veitingahúsaeigandinn játaði að hafa borið fram maura en sagði þá aðeins hafa verið notaða að mjög takmörkuðu leyti í 15 rétta matseðli staðarins, sem skraut ofan á ís. Gestum hefði verið boðið að fá eftirréttinn með eða án maura.
Myndir á samfélagsmiðlum vöktu athygli embættismanna
Eftirrétturinn rataði inn á borð embættismanna í ráðuneyti matvæla- og lyfjaöryggis eftir að matargestir birtu myndir á samfélagsmiðlum af mauraskreyttum eftirréttinum.
Rannsakendur telja að um 49 þúsund maurar hafi endað á matardiskum veitingahússins í nokkrum ólíkum réttum á síðustu fjórum árum. Skordýrin eru talin hafa verið flutt inn frá Bandaríkjunum og Taílandi.
Þá segja heilbrigðisyfirvöld maurana sem bornir voru á borð veitingahússins hafa innihaldið allt að 55-falt meira af þungmálmum en önnur skordýr sem eru borðuð í Suður-Kóreu.
Í frétt BBC segir að hvorki veitingamaðurinn né veitingahúsið hafi verið nefnd á nafn í málsskjölum. Í Suður-Kóreu eru tíu veitingahús með tvær Michelin-stjörnur. Þau eru öll í höfuðborginni Seúl.