Úrskurðarnefnd kosningamála hefur hafnað kæru vegna myndbirtingar RÚV af ógildum kjörseðli í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Kjörseðillinn var sýndur í beinni útsendingu Ríkisútvarpsins á kosninganótt. Kærandi fór fram á að kosningarnar yrðu úrskurðaðar ógildar í heild sinni.
Í úrskurði nefndarinnar segir meðal annars að kærandi lýsi málsatvikum þannig að á kosninganótt hafi fréttamaður RÚV sýnt mynd af kjörseðli sem talinn var ógildur í beinni útsendingu frá talningarstað Reykjavíkur í ÍR heimilinu. Vísaði kærandi þá til þess að kosningar á Íslandi væru leynilegar og því óheimilt að sýna kjörseðla.
Í umsögn yfirstjórnar kemur fram að yfirkjörstjórnin telji að myndbirting af kjörseðlinum í sjónvarpi hafi hvorki falið í sér annmarka né galla á framkvæmd kosninganna. Talning atkvæða eftir klukkan 22:00 hafi verið opin almenningi, lögum og venju samkvæmt.
Umræddur kjörseðill hafi verið vafaatkvæði í annarri umferð talningar og það úrskurðað ógilt klukkan 02:20. Tæpri klukkustund síðar, klukkan 03:04, var mynd af kjörseðlinum sjónvarpað og í framhaldinu rætt við fulltrúa yfirkjörstjórnar um hvernig farið væri með atkvæðið samkvæmt kosningalögum.
Fram kemur í úrskurði nefndarinnar að viðtöl við formenn eða fulltrúa um framkvæmd kosninga og talningar séu algeng. Jafnframt sé það eitt verkefna yfirkjörstjórnar að veita almenningi og fjölmiðlum upplýsingar, fræðslu og leiðbeiningar í kosningum.
„Ekki er að finna neina takmörkun í kosningalögum á myndatökum almennings eða fjölmiðla af talningu atkvæða og þá er heldur ekki að finna nein fyrirmæli þess efnis að óheimilt sé að sýna eða birta myndir af kjörseðlum í talningu,“ segir í úrskurðinum.
„Það er því ekki hægt að fallast á það með kæranda að myndbirting RÚV af kjörseðli leiði til þess að atkvæðagreiðsla á kjörfundi hafi ekki verið leynileg og þar af leiðandi ólögmæt. Þá verður heldur ekki talið að um galla á framkvæmd talningar hafi verið að ræða, sem hafi leitt til ógildingar sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík.“