Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur - Vísir

Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur - Vísir

Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur - Vísir

Laufey lést 13. febrúar síðastliðinn, aðeins 44 ára gömul. Nú hafa fjölskylda hennar og vinir ákveðið að breyta sársaukafullri reynslu í von fyrir aðra. Með nýju verkefni, Laufeyjar-láni, verður safnað fyrir kælihettubúnaði sem getur hjálpað fólki í krabbameinsmeðferð að draga úr hármissi. Vinir hennar ætla meðal annars að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst til að safna áheitum í minningu konu sem lagði mikla áherslu á að hjálpa öðrum, jafnvel á erfiðustu stundum eigin lífs.

Það var henni hjartans mál að aðrar konur gætu nýtt sér slíkar hettur sem eru fremur kostnaðarsamar. Þegar Laufey Tinna lést árið 2026 afþakkaði fjölskylda hennar blóm og kransa og óskaði þess í stað eftir stuðningi við verkefni sem gæti hjálpað öðrum í sömu stöðu.

Inga Katrín Guðmundsdóttir, systir Laufeyjar, lýsir systur sinni sem drífandi og hlýrri manneskju.

Hlý og fordómalaus

„Hún var mikil félagsvera og ævintýrakona og nærðist á því að hitta fólkið sitt sem hún sinnti svo vel. Hún átti auðvelt með að eignast vini hvert sem hún fór og tengdi fólk oft saman. Hún var hlý og fordómalaus, átti mjög ólíkar vinkonur, vildi kynnast sem flestum og nálgaðist alla á jafningjagrundvelli,“ segir Inga Katrín.

Á þessum átta árum gekk Laufey í gegnum fjölmargar lyfjameðferðir sem skildu eftir sig spor á líkama og sál. Þrátt fyrir þá erfiðleika sem fylgja því að lifa með lífsógnandi sjúkdómi hætti Laufey ekki að lifa lífinu.

„Hún hélt áfram að lifa lífinu þrátt fyrir veikindin. Hún fór í rosalega mikið af ferðalögum og gerði mikið úr jólum og öllum hátíðum. Hún var alltaf að hugsa um að skapa minningar fyrir strákinn sinn sem hún lifði fyrir.“

Áhrif hármissis

Laufey missti hárið að minnsta kosti þrisvar sinnum og reyndist það henni þungbært. Þetta snérist ekki aðeins um útlit heldur var hárið stór hluti af sjálfsmynd hennar og reisn. Hún upplifði sig veika og ekki sömu mömmuna og ekki sömu Laufeyju. Hún fór síður að hitta fólkið sitt sem gaf henni þennan mikla tilgang og orku í veikindunum.

Laufey ræddi veikindin í Bítinu á Bylgjunni árið 2021.

„Hún upplifði það sem stöðuga áminningu um að hún væri sjúklingur þegar hún var sköllótt; það var mikilvægt fyrir hana og strákinn hennar að geta haldið í hárið. Henni fannst líka erfitt að geta aldrei stjórnað því hvenær hún talaði um veikindin eða hverjum hún segði frá. Þegar þú ert sköllótt þá er einhvern veginn líklegra að þú sért spurð út í veikindin.“

Kælihettan sem dró úr hármissinum

Löngunin til að halda í hárið varð til þess að Laufey kynnti sér svokallaða kælihettuaðferð sem getur dregið úr hármissi bæði fyrir meðferðina og meðan á meðferð stendur. Kuldinn úr hettunum hægir á blóðflæði til hársekkjanna sem takmarkar áhrif lyfsins á það svæði. Árangurinn er misjafn eftir einstaklingum og tegund meðferðar en kælihettuaðferðin getur hjálpað mörgum að halda hluta eða jafnvel mestöllu hárinu sínu.

Meðferðin felur í sér kælingu hársvarðar fyrir lyfjagjöf, meðan á henni stendur og í nokkurn tíma eftir hana. Hún krefst mikillar nákvæmni og undirbúnings og Laufey þurfti aðstoð frá móður sinni og systur við að kæla hettur, mæla hitastig og sjá um allan búnaðinn.

Laufey lagði mikið á sig til að halda hárinu enda skipti það hana miklu máli og að sögn Ingu systur hennar snerist þetta minna um útlit en mun meira um jákvæðu andlegu áhrifin. Þetta gaf henni sjálfstraust og líka ákveðin völd.

„Þetta gaf henni ákveðna stjórn á veikindunum, þarna hafði hún stjórn á einhverju. Það skipti hana líka máli að líða vel með sjálfa sig. Þegar hún hélt hárinu þá hafði hún meira sjálfstraust til að fara út, hitta fólk og njóta lífsins. Fyrir hennar andlegu heilsu skipti þetta meira máli en margt annað. Fólk hugsar stundum að þetta sé bara útlitsatriði og grunnhyggið. En fyrir hana snerist þetta um reisn, sjálfsmynd og að geta verið áfram hún sjálf. Að þurfa ekki að vera sjúklingur hvert sem hún fór,“ segir Inga.

Laufeyjar-lánið

Það var Laufeyju hjartans mál að búnaður hennar og reynsla gæti nýst öðrum í sömu stöðu. Eftir andlát hennar ákvað því fjölskyldan að gefa búnaðinn til Krafts og hefja söfnun fyrir kælihettubúnaði sem fleiri gætu nýtt sér. Úr varð verkefnið „Laufeyjarlán“ þar sem Kraftur mun halda utan um kælihettubúnað og lána hann til félagsfólks síns.

„Markmiðið er að konur sem greinast með krabbamein fái upplýsingar um úrræðið strax í upphafi og geti fengið búnað lánaðan í stað þess að þurfa að finna út úr öllu sjálfar.“

Hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu

Vinir Laufeyjar hafa stofnað hlaupahóp sem mun hlaupa í minningu Laufeyjar í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst og safna áheitum sem renna óskert í Laufeyjar-lánið.

Angelien Schalk, vinkona Laufeyjar, er forsprakki hlaupahópsins og segir Laufeyju hafa verið moldríka af vinkonum sem allar vilji nú leggja hönd á plóg;

„Hún átti mjög margar vinkonur og var mjög dugleg að tengja saman vinkonuhópa. Það er mjög lýsandi fyrir hana að hún hafi gengið inn í tvíburamömmuhópinn sem ég tilheyrði, þrátt fyrir að eiga ekki tvíbura. Hún tengdist öllum og tengdi fólk þvert á hópa.“

Hlaupahópurinn hefur þegar hafið sameiginlegar æfingar og hittist vikulega til að hlaupa saman. Fyrir marga hefur undirbúningurinn orðið ákveðin úrvinnsla sorgarinnar.

„Það er magnað að hitta fólk vikulega sem elskaði hana öll á sinn hátt. Hreyfingin, náttúran og samveran eru mjög gefandi í sorginni.“

Hanna sérstakan bol

Stuðningshópur sem áður fylgdist með veikindabaráttu Laufeyjar inni á Facebook hefur sameinast á ný í kringum verkefnið og fjölmargir ætla að taka þátt í hlaupinu. Þá er verið að hanna sérstakan bol til að heiðra minningu hennar. Inga systir hennar segir að það sem skipti mestu máli sé að eitthvað gott fái að lifa áfram úr erfiðri reynslu;

„Ég veit bara að hún væri svo ánægð með þetta, mig langar svo að geta hringt í hana og sagt henni frá þessu. Hún hefði verið svo glöð að vita að hún væri að skilja eitthvað eftir sig sem gæti hjálpað öðrum.“

Viðtalið birtist fyrst á vef Krafts þar sem finna má nánari upplýsingar um Laufeyjar-lán.

#hjálpa #hún #vildi #öðrum #þótt

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262896122d/vildi-hjalpa-odrum-thott-hun-vissi-ad-timinn-vaeri-naumur

📰 Aðrar fréttir

Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
📅 28.10.2026 👁️ 1
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi í Tennessee fylki á sunnudagskvöld. Þeir sem þekkja til óttast að hann muni drepa aftur þar sem hann hafi en...
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
📅 28.10.2026 👁️ 1
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
„Ég er réttkjörinn forseti og glæpamennirnir sem stálu kosningunum í Brasilíu tilheyra glæpasamtökum sem hafa komið á harðstjórn,“ sagði brasilíski fo...
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
📅 28.10.2026 👁️ 2
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
Norskur barnalæknir og prófessor við Háskólann í Ósló telur að börn eigi almennt ekki að hefja leikskólagöngu fyrr en við tveggja til þriggja ára aldu...
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
📅 28.10.2026 👁️ 2
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir það verulegt áhyggjuefni að Karim Askari, formaður Stofnunar múslíma á Íslandi, fordæmi ekki skil...
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
📅 28.10.2026 👁️ 1
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
Earlier in the day, the King paid his respects to the island's fallen servicemen and women.
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
📅 28.10.2026 👁️ 2
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
The crash, between a moving train and another that was stopped further up the track, was caused by an "inexplicable" error, the transport minister sai...
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
📅 28.10.2026 👁️ 2
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
Stutt myndbrot innan úr golfhermi fyrirtækisins Gullkylfunnar birtist í Kveik í gærkvöldi.Myndefnið var tekið af samfélagsmiðli fyrirtækisins Vopnabúr...
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
📅 28.10.2026 👁️ 2
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
Leigufélög almennt óánægð með takmarkanir á leiguRagnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að halda til haga fyrir hverj...
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
Tímaritið Life hóf göngu sína sem vikurit árið 1936 og fjallaði um stórviðburði, áhrifafólk og hversdagslegan veruleika 20. aldarinnar. Það náði hátin...
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
📅 28.10.2026 👁️ 1
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
The Heroes and Nashville star died in August from the toxic effects of fentanyl, Xanax and several other drugs.
Lýsa upp skammdegið með list
📅 28.10.2026 👁️ 2
Lýsa upp skammdegið með list
Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, ...
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
📅 28.10.2026 👁️ 2
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
Heimurinn bíður með eftirvæntingu eftir þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð (einnig þekkt sem reta) sem lyfjaframleiðandinn Eli Lilly er nú með í klíní...
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu. Nýlega var fjallað um kvörtun kven...
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
📅 28.10.2026 👁️ 2
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
„Þetta var þungur þáttur. Hann var þungur, ósanngjarn, einhliða og ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum,“ segir Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, móðir ...
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunn...
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
📅 28.10.2026 👁️ 2
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
Það er töluvert langt í land þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á mann á Íslandi borið saman við önnur lönd í Evrópu. Þörf er á samstilltu áta...
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
Þetta segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf lögr...
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
📅 28.10.2026 👁️ 2
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje? Fréttin28. október 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Selma Gamalel...
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
📅 28.10.2026 👁️ 2
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, segir það koma mest á óvart í þingkosningunum í Ísrael að Netanjahú hafi ekki tapað meir...
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
📅 28.10.2026 👁️ 2
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu áru...
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
📅 28.10.2026 👁️ 2
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglum...
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
📅 28.10.2026 👁️ 3
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
Ný heimildarmynd um Matthew Perry er nú komin á Netflix, en þar vantar nokkur mjög kunnugleg andlit.Í dag (28. október) eru liðin þrjú ár frá skyndile...
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
Eyrún flutti út fyrir sex árum og býr með kærastanum sínum Oskari, sem er líka leikari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eyrún tókst á við sit...
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær um að Usmani hefði haldið trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg í Reykjavík á m...
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
📅 28.10.2026 👁️ 3
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
The Provincial Court of Santa Cruz de Tenerife has sentenced a man to 37 years and six months in prison for murdering his partner’s brother, attemptin...
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
„Hann er á leiðinni aftur inn,“ segir Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks, um þáttinn í samtali við Vísi. Hún segir að uppfæra hafi þurft mynde...
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
📅 28.10.2026 👁️ 3
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum Fréttin28. október 2026Erlent, Evrópusambandið...
Múslímavandi Samfylkingar
📅 28.10.2026 👁️ 3
Múslímavandi Samfylkingar
Múslímavandi Samfylkingar Fréttin28. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Talsmaður Samfylkingar ...
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá vær...
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
📅 28.10.2026 👁️ 3
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
Þrír menn hafa verið sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kveikja í Teslu-bifreið rannsóknarlögreglukonu hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu....
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
📅 28.10.2026 👁️ 3
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
The chancellor announced a series of measures which will impact under-25 year-olds from housing to minimum wage.
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
📅 28.10.2026 👁️ 3
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
VÍK - Vináttufélag Íslands og Kúbu efndi til mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í dag. Mótmælin voru haldin vegna atkvæðagreiðslu ...
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
📅 28.10.2026 👁️ 3
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
His arrival in the US ends speculation about his whereabouts after he failed to comply with an order to surrender his passports.
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir

Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
Í ákæru á hendur mönnunum þremur, sem hafa allir neitað sök, segir að um hafi verið að ræða Teslu Model 3, 2020 árgerð, sem var í eigu lögreglumanns o...
John Healey unveils £100 for energy bills and bank tax in first Budget
📅 28.10.2026 👁️ 3
John Healey unveils £100 for energy bills and bank tax in first Budget
The chancellor targets the cost of living amid global economic turmoil but opposition parties say he has not been bold enough.
Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang
📅 28.10.2026 👁️ 5
Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang
Leikkonan Jenette Goldstein, sem gerði garðinn frægan í hasarmyndum og vísindaskáldskap, á níunda og tíunda áratugnum er óþekkjanleg í dag. Hún hefur ...
Telja það samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
📅 28.10.2026 👁️ 4
Telja það samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
Stjórn Bandalags íslenskra listamanna telur að samningsbrot hafi átt sér stað þegar Kópavogsbær tók þá ákvörðun að mála yfir Sólarslóð, útilistaverk T...
Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk

Móðir fékk skammir frá skólanum fyrir að mæta í náttfötum að sækja barn - „Hvenær byrjaði skólinn að setja foreldrum klæðaburðarreglur?“
📅 28.10.2026 👁️ 5
Móðir fékk skammir frá skólanum fyrir að mæta í náttfötum að sækja barn - „Hvenær byrjaði skólinn að setja foreldrum klæðaburðarreglur?“
Móðir í bresku borginni Liverpool er bálreið eftir að hún fékk vandræðalegt bréf frá grunnskóla barnsins síns. Var henni bannað að mæta í náttfötunum ...
Hið opinbera gangi of langt í uppsögnum
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hið opinbera gangi of langt í uppsögnum
Forseti ASÍ telur hið opinbera hafa gengið of langt í uppsögnum að undanförnu. Hann segir einkennilegt að vísa til þess að með uppsögnum sé verið að t...
Orðið á götunni: Veist þú með hvaða liði þú spilar?
📅 28.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Veist þú með hvaða liði þú spilar?
Hugmyndin um vestrænt lýðræði er falleg og því miður dálítið barnaleg. Við opnum kjörstaði, teljum atkvæði, treystum á fjölmiðla og gerum ráð fyrir að...
Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi - Vísir
Á tímabilinu 6. maí til 21. september 2024 sveik starfsmaðurinn, í blekkingarskyni og án heimildar, út reiðufé að verðmæti 780 þúsund króna, að því er...
Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025
📅 28.10.2026 👁️ 5
Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025
Árið 2025 voru rétt rúmlega 80 þúsund flugleggir keyptir með Loftbrú.Kostnaður ríkisins við niðurgreiðsluna nam rúmlega 740 milljónum.Til stendur að g...
Healey buys himself some time, but big questions unanswered
📅 28.10.2026 👁️ 4
Healey buys himself some time, but big questions unanswered
The chancellor talked of charting a new course for Britain, but the impact of Iran war has limited his options.
Engar vís­bendingar og litlar upp­lýsingar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 6
Engar vís­bendingar og litlar upp­lýsingar - Vísir
Leitaraðgerðir fóru fram á vettvangi í Grindavík í gær og voru á ábyrgð lögreglustjórans á Suðurnesjum. Fyrir lá ítarlegt áhættumat í fjórum þáttum en...
Engar vís­bendingar og lítið af upp­lýsingum - Vísir

Boluda Shipping kaupir Samskip
📅 28.10.2026 👁️ 5
Boluda Shipping kaupir Samskip
Spænska fjölskyldufyrirtækið Boluda Shipping hefur keypt allt hlutafé flutningsfyrirtækisins Samskipa. Skrifað var undir kaupsamning á skrifstofu Sams...
Ís­lendingar losa meira en Evrópu­búar í lang­flestu - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Ís­lendingar losa meira en Evrópu­búar í lang­flestu - Vísir
Íslandi hefur ítrekað verið lýst sem leiðandi í loftslagsmálum enda sé hér nær ekkert losað af gróðurhúsalofttegundum til þess að framleiða raforku og...