Í Vikulokunum í dag verður rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu.
Þátturinn er í beinni útsendingu í mynd hér að ofan. Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing, Guðmund Heiðar Helgason, almannatengil og Ragnheiði Kristjánsdóttur, sagnfræðing.
Í öðrum hluta verða uppsagnir Reykjavíkurborgar í vikunni ræddar. Þar verða Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar gestir þáttarins.
Í þriðja hluta eru kjaramál í brennidepli þegar Ingvar tekur á móti Arnaldi Sölvi Kristjánssyni, formanni fjármálaráðs, Birgittu Ragnarsdóttur, stjórnarmanni í VR og Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Vörðu.