Viktoría Líf Guðlaugsdóttir lést síðastliðinn miðvikudag, 22 ára að aldri. Skilur hún eftir sig soninn Atlas Mána, tveggja ára.
Vinkonur hennar hafa sett af stað söfnun fyrir útför Viktoríu Lífar og mun það sem eftir stendur renna til sonar hennar. Í færslu þeirra á Facebook segir:
„Það er með þungum hjörtum sem við setjum af stað söfnun vegna skyndilegs fráfalls elsku Viktoríu Lífar okkar.
Á síðustu tveimur árum hefur fjölskyldan gengið í gegnum ólýsanlegan missi og sorg — móður, bróður og sonar. Nú hefur enn eitt þunga áfallið dunið yfir. Og fjölskyldan á ekki að þurfa bera fjárhagsáhyggjur vegna útfararinnar.
Þeir sem vilja og geta lagt sitt af mörkum til að létta undir með fjölskyldunni á þessum erfiða tíma geta lagt inn framlag vegna útfarar Viktoríu Lífar.
Allt sem safnast umfram útfararkostnað mun renna til elsku Atlasar Mána, tveggja ára sonar hennar, til stuðnings framtíðar hans.
Öll aðstoð, stór sem smá, skiptir máli og er innilega metin.“
Styrktarreikningurinn er á nafni Birgis Hákons Guðlaugssonar bróðir Viktoríu Lífar:
Reikningsnúmer: 0702-15-036144
Kennitala: 280596-3379
Margt smátt gerir eitt stórt.