Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.
Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi sé í grunninn gott og margt sé þar gert frábærlega vel. Íslenskt samfélag standi hins vegar á krossgötum í menntamálum og niðurstöður mælinga kalli á viðbrögð. Kennaraskortur sé viðvarandi áskorun, nemendahópar séu að verða fjölbreyttari og örar tæknibreytingar muni breyta námi og kennslu.
„Við tökum menntun barna og ungmenna alvarlega. Við þurfum að bregðast við. Við verðum að bæta úr með markvissum langtímaumbótum, skýrum markmiðum og stöðugri eftirfylgni. Skólakerfi verður ekki byggt með skyndilausnum frá einu kjörtímabili til annars,“ segir í tilkynningu KÍ um fundinn í dag.
Á fundinum mun KÍ kynna sérstaklega þau atriði sem sambandið telur að þurfi að setja í algjöran forgang til að efla og styrkja menntamál og skólastarf í landinu.
Fundurinn hefst klukkan 14:30 og verður í beinni útsendingu hér fyrir neðan. Framsögumaður á fundinum verður Magnús Þór Jónsson formaður KÍ en hann fer fram í Réttarholtsskóla.