Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.
Það er allt á fullu við byggingu nýju Ölfusárbrúarinnar, sem verður 330 metra löng stagbrú yfir Ölfusá og þá er töluvert um nýja vegi í kringum brúna, sem er verið að vinna í, ásamt undirgöngum.
Höskuldur Tryggvason er verkefnisstjóri verksins fyrir hönd Vegagerðarinnar en ÞH verktakar sjá um byggingu brúarinnar.
„Verkið hefur bara gengið vel og nú er verktími um það bil hálfnaður. Nú er aðallega verið að vinna í því að setja saman brúargrindina, ganga frá henni og koma lögnum fyrir í henni og gera hana tilbúna til að draga yfir ána,” segir Höskuldur.
Mikil suðuvinna fylgir samsetningu brúargrindarinnar og hefur það verk gengið vel segir Höskuldur.
„Já, þetta eru gríðarlegar suður á grindinni. Þetta eru mjög stórir bitar, þeir eru tveggja metra háir aðalbitarnir. Þeir eru soðnir saman en þeir koma hérna í tuttugu og fimm metra einingum eða svo og á milli þeirra koma þverbitar þannig að þegar við leggjum saman suðustrenginn þá er það um einn og hálfur kílómetri,” segir Höskuldur og bætir við. „Já, það er mjög mikil suðuvinna og þessi þversnið eru þykk líka”.
En þyngd brúarinnar, hver er hún?
„Öll grindin er um tvö þúsund tonn”.
Nú starfa um 80 manns við smíði brúarinnar, langflestir erlendir starfsmenn. En hvenær stendur til að draga brúarbitana yfir Ölfusá?
„Já, við gerum ráð fyrir því ef að áætlanir standast þá verði það núna einhvern tímann svona upp úr miðjum mánuðinum,” segir Höskuldur.
Samkvæmt verkáætlun á nýja brúin að vera tilbúin 2. október 2028 og það mun kosta að aka yfir hana.
En hvert verður gjaldið? Það veit Höskuldur.
„Já, það er gert ráð fyrir því að það verði um 500 krónur fyrir venjulega bíla”.
Eru menn alveg sáttir við það?
„Ég hef ekki heyrt annað en að menn séu ágætlega sáttir við það. Þetta verður fyrir mörgum mikill tímasparnaður að fara þessa leiðina. Við sjáum það oft hér seinni part dags að það myndast hér langar raðir, það myndi þá vera einfaldara að fara hér yfir,” segir Höskuldur.