Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári. Ástæðan er niðurskurður í rekstri vegna óvissu um fjármögnun stofnunarinnar. Keppninni verður heldur ekki sjónvarpað.
Ríkisstjórn Tékklands, undir forystu Andrej Babiš, hyggst hætta að innheimta afnotagjöld til að reka ríkisútvarp landsins og setja stofnunina í staðinn beint á fjárlög. Breytingin hefur verið gagnrýnd víða. Starfsmenn stofnunarinnar mótmæltu henni með táknrænu verkfalli í júní í fyrra og samtökin Blaðamenn án landamæra telja þessa ráðstöfun geta dregið úr sjálfstæði almannaþjónustumiðla.
Tékkar tóku fyrst þátt í keppninni árið 2007 og hafa alls tekið þátt 14 sinnum. Í sex skipti hafa þeir komist í lokakeppnina. Írland og Spánn hafa þegar tilkynnt að þau muni ekki taka þátt vegna þátttöku Ísraelsmanna í keppninni. Þessi lönd tóku heldur ekki þátt í fyrra og sama gilti um Ísland, Holland og Slóveníu.
Keppnin fer fram í Burgas í Búlgaríu 15. maí.