Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.
Bandaríkin leggja 130 milljónir dollara til verkefnisins. Raflínan verður 70 kílómetra löng og á að vera tilbúin árið 2032.
Nafngiftin var að tillögu bandaríska sendiráðsins í Moldóvu, en stjórnvöld þar segjast styðja nafngiftina. Í nágrannaríkinu Rúmeníu stendur einnig til að nefna garð í Búkarest eftir Trump.
Trump kann almennt vel við að setja nafn sitt á eitt og annað. Má þar nefna Kennedy-menningarmiðstöðina sem hann vill bæta sínu nafni við, en það hefur mætt mótspyrnu.