Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 prósent þegar samningsbundnar launahækkanir væru 3,5 prósent.
„Nei, það er auðvitað bara mjög erfitt,“ segir Ásgeir.
Hann segir engu að síður nauðsynlegt að rjúfa hringrás launa- og verðhækkana. Fyrirtæki hafi að einhverju leyti brugðist við launahækkunum með því að hækka verð og þannig hafi myndast samspil sem þurfi að stöðva.
Ríkið, sveitarfélög og fyrirtæki hafa gefið fyrirheit
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur lýst ríkisstjórnina reiðubúna til að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5 prósent um áramót, í stað 5,2 prósenta samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Fyrirheitið er háð því að kjarasamningar haldi og aðrir aðilar leggi sitt af mörkum. Hún hefur jafnframt boðað sambærileg tilmæli til fyrirtækja í eigu ríkisins.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti ályktun 25. september um vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á næsta ári.
Þar er einnig lögð áhersla á að kjarasamningar haldi og ríkið taki þátt með sambærilegum hætti.
Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs og Kjarnavara, hefur skuldbundið sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna umfram verðbólgumarkmið um áramót. Í tilkynningu félagsins frá 21. september er sérstaklega tekið fram að það geri fyrirtækið þrátt fyrir 3,5 prósenta samningsbundna launahækkun á sama tíma.
Verslanir hafa fryst verð á völdum vörum
Nokkrar verslanakeðjur hafa einnig tilkynnt tímabundnar aðgerðir. Krónan hefur fryst verð á 647 vörum til áramóta. Hagar lækkuðu verð á hátt í þúsund vörum í Bónus og Hagkaup um tvö prósent og hétu því að það hækkaði ekki aftur fyrir áramót. Nettó lækkaði verð á 1.100 vörum um 2,2 prósent og frysti það til áramóta. Aðgerðir verslananna ná því til tiltekinna vara og afmarkaðs tímabils.
Vonar að samningsbundnar hækkanir rúmist innan markmiðsins
Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5 prósent. Ásgeir vísaði í viðtalinu til þess að launahækkanir um áramót yrðu 3,5 prósent ef gildandi kjarasamningar héldu.
Spurður hvort þær hækkanir samrýmdust verðbólgumarkmiðinu sagði hann bankann vona að hægt yrði að ná verðbólgu niður þótt samningsbundnar hækkanir kæmu til framkvæmda.
Hann telur jákvætt að opinberir aðilar taki ábyrgð með því að halda gjaldskrárhækkunum við verðbólgumarkmiðið og segist hafa trú á sameiginlegu átaki.
„Við erum ekki svo mörg í þessu landi þannig að við ættum alveg að geta unnið saman.“
Sveitarfélögin hafi mikið að vinna
Ásgeir var jafnframt spurður hvort takmarkaðar gjaldskrárhækkanir gætu leitt til aukinnar skuldsetningar sveitarfélaga ef kostnaður þeirra héldi áfram að hækka meira en tekjurnar.
Hann bendir á að sveitarfélögin hafi sjálf mikið að vinna með því að verðbólga hjaðni. Það skapi svigrúm til vaxtalækkana og dragi þannig úr vaxtakostnaði þeirra. Hið sama eigi við um ríkissjóð.
„Auðvitað er það ekki sérstaklega gott ef stór hluti af tekjum sveitarfélaganna fer í að greiða vexti og verðbætur.“
Ásgeir telur því að sveitarfélögin geti fengið ávinninginn af hóflegum gjaldskrárhækkunum til baka í lægri fjármagnskostnaði. Hann bindur vonir við að verðbólga geti hjaðnað hratt á næsta ári ef allir leggjast á eitt.