Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlynsdóttir stjórnmálafræðingur. Ágreiningur um gervigrasvöll í Suðurnesjabæ gæti verið toppurinn á ísjakanum.
„Það er náttúrulega komin upp þarna dálítið erfið staða, en í sjálfu sér ekkert óþekkt því það gerist reglulega að meirihlutar springi – en þetta er svona í stysta lagi eftir sveitarstjórnarkosningar,“ segir Eva Marín.
„Það er samt þekkt, sérstaklega fyrstu kjörtímabilin eftir að sameining á sér stað, þá er oft erfitt að ná einhvers konar jafnvægi í samskiptum milli tveggja ólíkra eininga.“
Meirihluti Samfylkingar og D-lista Sjálfstæðisflokksins sprakk um helgina.
Átta ár eru síðan Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Garður sameinuðust í Suðurnesjabæ. Fyrir tveimur árum sprakk meirihlutinn vegna ágreinings um staðsetningu gervigrasvallar og hann virðist enn vera eitt helsta þrætuepli bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar.
„Það eru miklir hagsmunir í húfi en það eru líka tilfinningar og þetta litast oft af því að „ég vil fá jafn mikið og þú og hann á ekki að fá meira en ég“ og svo framvegis,“ segir Eva Marín.
Ágreiningsmálin geti verið af ýmsum toga og þá þurfi að leggja áherslu á málamiðlanir.
„Ef hvorugur er til í að gefa eftir og báðir vilja fá sitt þá getur þetta endað svona.“
Kannski toppurinn á ísjakanum
Dæmi séu um djúpstæð átök sem hafi varað langan tíma en hvort það sé raunin í Suðurnesjabæ sé ekki ljóst.
„Hvort þetta hafi einhver áhrif til lengri tíma litið er erfitt að segja til um,“ segir Eva Marín.
„Það væri þá ekki nema þetta væri kannski bara toppurinn á ísjakanum sem við sjáum að það séu einhver önnur vandamál og djúpstæðari ágreiningsmál sem urðu þarna undir sem við höfum ekki innsýn í.“
Hafa beri í huga að sveitarfélög séu stjórnsýslueiningar og ekki sjálfsagt að sameining þeirra skili sameiningu samfélaganna innan þeirra sem Eva Marín segir gjarnan frekar mótast af staðar- eða menningartengslum innan smærri eininga.
„Það hefur verið sýnt í erlendum rannsóknum, og við höfum séð það líka kannski í eldri gögnum hjá okkur, að þetta tekur jafnvel heilu kynslóðirnar. Það þarf bara mjög langan tíma til þess að það fari einhvern veginn að sníða vankantana af af þessum vandamálum sem geta komið upp.“