Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann segir umfangsmikla notkun snjalltækja augljóslega hafa mikil áhrif á námsárangur.
Andreas Schleicher er framkvæmdastjóri hjá OECD og einn helsti sérfræðingur samtakanna í PISA-prófunum sem þreytt eru með reglulegu millibili í aðildarríkjunum.
Hann segir gögn sýna að árangur nemenda verði lakari með hverju árinu í langflestum löndum og sérstaklega eigi unglingar erfitt með flóknari texta og skilning á honum.
Ein skýringanna sé sú að unglingar verji stöðugt meiri tíma í snjalltækjum og til viðbótar séu þeir sjaldnar að nýta tækin til sköpunar en í auknum mæli til afþreyingar. Hann segir gögnin sýna að þessi tengsl séu ótvíræð.
Andreas segir heiminn vera að breytast verulega þegar kemur að menntun og samspil fjármagns og framfara sé alls ekki jafn skýrt og það var áður.
Fátækari þjóðir hafi tekið sig á en þær ríkari ekki og hann tekur Ísland sem sérstakt dæmi; þrátt fyrir að við verjum mjög miklu fjármagni í grunnskóla sé árangurinn í meðallagi.
Andreas segir Íslendinga þurfa að sýna meiri metnað í skólamálum, foreldrar þurfi að fylgjast betur með námi barna sinna og almennt þurfi Íslendingar að sýna menntun og þá sérstaklega kennurum meiri virðingu.
Laða þurfi hæfa kennara til starfa.
„Ef litið er á kennara sem stórstjörnur í samfélaginu en ekki bara starfsmenn í skólastofu, er hægt að stórbæta árangur. Það er meginatriðið sem læra má af hágæða menntakerfum.”