Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk um helgina.
Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ, segir samtölin vera á byrjunarstigi.
„Menn eru að byrja að ræða saman óformlega, það er ekki komið neitt lengra en það.“
Hann kveðst hins vegar telja að formlegar viðræður gætu verið inna seilingar og er bjartsýnn á framhaldið og að flokkunum takist að ná saman.
Átta ár eru síðan Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Garður sameinuðust í Suðurnesjabæ. Fyrir tveimur árum sprakk meirihlutinn vegna ágreinings um staðsetningu gervigrasvallar og hann virðist enn vera eitt helsta þrætuepli bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar.
Meirihluti Samfylkingar og D-lista Sjálfstæðisflokksins sprakk um helgina.
Haukur Andreasson, oddviti D-listans, segir stöðuna vera viðkvæma og að íhuga þurfi vel næstu skref. Hann vildi ekki segja hvort D-listinn væri að ræða við aðra flokka.
Samfylkingin og óháðir fékk þrjá fulltrúa í Suðurnesjabæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Framsóknarflokkurinn og óháðir fengu tvo líkt og D-listi Sjálfstæðisflokksins og óháðra og Miðflokkurinn.