„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín.“Svona hefst bréf karlmanns til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun. Hann óskar eftir ráðum. Hann er 26 ára og kærastan er 27 ára. Þau kynntust á bar og hefur hann verið yfir sig ástfanginn síðan.„Ég fann strax fyrir mikilli hrifningu og hún líka. Við fórum á stefnumót og höfum verið óaðskiljanleg síðan,“ segir hann.Þrír mánuðir eru liðnir og lífið leikur við þau, eða þar til í síðustu viku.
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“