Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Konan var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af sárum sínum.
Talsmaður lögreglunnar vildi ekki tjá sig um hvort að árásarmaðurinn og sú látna hefðu verið tengd á einhvern hátt. Rannsókn ætti eftir að leiða það í ljós.
Sjónarvottar sem ríkisútvarpið náði tali af segja að nokkrir vegfarendur hafi náð hnífi af manninum áður en lögreglumenn komu á vettvang.