Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartavandamála. Hann liggur enn inni eftir erfiða daga en segir líðan sína vera að batna.
Swoll greinir frá þessu í stuttri færslu á Facebook og biður fylgjendur sína um hlýjar hugsanir og bænir.
„Ég var fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartans. Síðustu dagar hafa verið erfiðir. Ég er enn hér en mér líður betur. Sendið kærleika og bænir.“
Hann greinir ekki nánar frá því hvers konar hjartavandamál leiddu til innlagnarinnar.
Þekktur fyrir að verja fólk í ræktinni
Swoll hefur byggt upp gríðarstóran fylgjendahóp með myndböndum þar sem hann gagnrýnir einelti, niðurlægingu og tillitsleysi á líkamsræktarstöðvum. Hann er með um 5,5 milljónir fylgjenda á Instagram.
Hann tekur meðal annars fyrir myndbönd þar sem fólk gerir grín að öðrum gestum líkamsræktarstöðva eða birtir upptökur af þeim án samþykkis. Skilaboð hans eru jafnan að ræktin eigi að vera staður þar sem fólk geti æft án þess að óttast að verða að athlægi á netinu.
Hefur áður glímt við hjartavandamál
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Swoll greinir frá vandamálum tengdum hjartanu. Í janúar 2023 sagði hann að erfðatengd frávik í hjarta hefðu komið í ljós eftir að hann leitaði læknis vegna verkja í brjósti. Hann gekkst þá undir aðgerð.
Í apríl 2024 lýsti hann síðan alvarlegum fylgikvillum við rannsókn á kransæðum. Að sögn Swolls losnaði hluti af tæki inni í hjarta hans og aðgerð sem átti að taka um hálftíma dróst á langinn í sex klukkustundir.