Átta hið minnsta eru særð eftir hnífaárás í borginni Ostrołęka í Póllandi í morgun. Samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins eru fimm hinna særðu á barnsaldri og þrír fullorðnir. Meiðsli tveggja eru talin alvarleg.
19 ára piltur, nemandi í skólanum var handtekinn á flótta frá vettvangi árásarinnar.
Paweł Niewiadomski, borgarstjóri Ostrołęka sagði að lögregla hafi náð stjórn á ástandinu og biðlaði til fólks að sýna rósemd og hlýta tilmælum viðbragðsaðila.
Skólanum var lokað og verið var að tryggja öryggi í nærliggjandi skólum á meðan lögregla rannsakar atburðarásina.