Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi hann ekkert aðhafast. Katrín opnaði sig fyrst um málið á TikTok og segir í samtali við DV:„Ég upplifði mig mjög óörugga og mér fannst þetta mjög óþægilegar aðstæður, sérstaklega þar sem ég hef lent í svipuðum aðstæðum og er með mál í kerfinu, þá var þetta mjög triggerandi.“
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool