„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og aukin geopólitísk spenna ögrar rótgrónu samstarfi á svæðinu og efnahagslegir og stjórnskipulegir hagsmunir togast á,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.
Ráðstefnan hefst klukkan eitt og stendur til fimm. Meðal viðmælenda eru Alexandra Anstrell, sænskur þingmaður, og Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunarinnar. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, lokar ráðstefnunni.
Sérstaklega verður fjallað um eftirfarandi spurningar:
- Hvernig eru geópólitísk samkeppni og öryggismál að móta samstarf og stjórnarhætti á norðurslóðum?
- Hvernig er hægt að samræma vaxandi eftirspurn eftir auðlindum og nýrri tækni við markmið um náttúruvernd og umhverfisvernd?
- Hvað má læra með því að tengja saman þekkingu og reynslu frá íshvolfssvæðum heimsins sem standa frammi fyrir hröðum umhverfisbreytingum?
- Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar og aukin umsvif mannsins á líffræðilega fjölbreytni á norðurslóðum, og hvar liggja enn tækifæri til samvinnu?