Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður félagsins brást hart við þegar íþrótta- og útilífsráð Reykjavíkurborgar ákvað að segja upp samningi við félagið um rekstur íþróttahússins í Austurbergi og að borgin taki yfir reksturinn. Sagði hann að borgin væri að úthýsa félaginu og gagnrýndi formann ráðsins, Bjarna Guðjónsson borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, harðlega.
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“