EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föður síns.
Barnið fæddist í Bandaríkjunum með sæði föður síns, eggi frá eggjagjafa og staðgöngumæðrun. Faðirinn er íslenskur, sænskur og bandarískur ríkisborgari. Hann og maður hans, sem er franskur og bandarískur ríkisborgari, eignuðust tvö börn, bæði með staðgöngumæðrun.
Sænskur dómstóll staðfesti foreldratengsl þegar fjölskyldan flutti þangað en Þjóðskrá Íslands hafnaði því að skrá son Íslendingsins sem barn hans. Þetta gerði hún þar sem íslensk lög heimila ekki samgöngumæðrun.
Feðurnir stefndu íslenska ríkinu eftir synjun Þjóðskrár. Héraðsdómur Reykjavíkur óskaði eftir svörum EFTA-dómstólsins um hvernig hann túlkar tilskipun um frjálsa för launþega. Það svar barst í dag.
EFTA-dómstóllinn segir að ríki ráði hvort þau heimili staðgöngumæðrun eða ekki. Þau geti hins vegar ekki neitað að virða rétt fólks til að flytja á milli ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Dómstóllinn sagði að með því að synja beiðninni um skráningu barnsins sem sonar föður síns væru íslensk stjórnvöld að takmarka rétt barnsins til frjálsrar farar sem tryggð er í EES-samningnum.
EFTA-dómstóllinn segir að ef fjölskyldutengsl sem stofnað hefur verið til í einu EES-ríki séu ekki viðurkennd í öðru geti skapast verulegar hindranir í vegi fjölskyldulífs, í þessu tilfelli á Íslandi. Þetta sé vegna þess að óvissa ríki þá um rétt barnsins til búsetu og hindranir séu í tengslum við forsjá og almannatryggingar.