Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sinnar, leikkonunnar Catherine Zeta-Jones. Þau kynntust á tíunda áratugnum og gengu í það heilaga árið 2000.Þegar þau voru að byrja saman sagðist hún ekki hafa áhuga á að vera með honum nema þau væru bara hvort með öðru, hún vildi engar aðrar konur í spilinu.„Ég sagði við hana: „Bíddu hér, ég þarf að hringja fimm stutt símtöl,““ skrifar Douglas. Leikkonan var mjög hissa: „Fimm? Þarftu að hringja fimm símtöl?!“
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti