Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuverðshækkana eru að mestu gengin í gegn.
Þetta segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri um ástæður þess að stýrivextir haldast óbreyttir. Peningastefnunefnd tilkynnti ákvörðun sína í morgun.
„Ef verðbólgan lækkar þá getum við vonandi farið að lækka vextina. Það getur vonandi farið að gerast á næsta ári.“
Heimilin sem skuldi beri mestan kostnað
Ásgeir rifjar upp að bankinn hafi verið byrjaður að lækka vexti áður en verðbólga fór að aukast á ný. Þá brá hann á það ráð að hækka vexti aftur. Nú kólni hagkerfið og því sé von til að verðbólga minnki.
Nærri sex prósenta verðbólga sé allt of mikið og forgangsverkefni að ná henni niður. Það sé ljóst að heimilin beri töluverðan kostnað af verðbólgunni og háum vöxtum, sérstaklega þau heimili sem skulda.
„Svo eru auðvitað önnur heimili sem eiga sparifé. Þess vegna er þetta svo mikilvægt að það ætti að vera forgangsatriði fyrir aðila vinnumarkaðarins að ná verðbólgu niður og ná vöxtum niður. Þetta er það sem skiptir mestu máli fyrir lífskjör heimilanna, ekki endilega að fá fleiri krónur núna heldur að ná vöxtunum og verðbólgunni niður.“
Leigubremsa komi leigjendum verst
Hann segir útbreidda verðtryggingu vera áhyggjuefni á Íslandi. Sú verðtrygging nái meðal annars til ríkisútgjalda og launa.
„Auðvitað er mjög nauðsynlegt að rjúfa þennan vítahring, að fara ekki núna aftur og heimta meiri launahækkanir sem fyrirsjáanlega munu bara leiða til meiri verðbólgu og enn hærri vaxta,“ segir Ásgeir.
Spurður um áform stjórnvalda um að takmarka möguleika leigusala til að hækka húsaleigu segir Ásgeir að allir hagfræðingar ættu að vita að það væri engin lausn að grípa til slíkra aðgerða. Hann væri ekki viss um að leigubremsa hefði mikil áhrif á verðbólgu til skemmri tíma.
„Þetta eru algjörlega röng viðbrögð sem koma leigjendum verst.“
Ekki bara hægt að hugsa um krónur í veskið
Ásgeir fagnar samkomulagi Breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins um að samningar þeirra haldi gildi sínu. Hann lýsir áhyggjum af að félög sem ekki stóðu að samkomulaginu í gærkvöld reyni að fara fram hjá því eða heimta meira.
Á sama tíma sé atvinnuleysi að aukast og vert að hugsa ekki bara um krónur í veskið heldur að vernda störf. Sjálfur telur hann að þurfi þjóðarsátt á vinnumarkaði, þar sem allir samningsaðilar séu við borðið. Seðlabankinn sé þó ekki við samningsborðið og væri því fyrst og fremst til ráðgjafar um slíkt.
Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri segir tíðindi gærkvöldsins góð en að þau breyti því ekki að laun hækki áfram mikið. Ekki sé hægt að horfa fram hjá því að töluverðra launahækkana sé að vænta um áramótin samkvæmt kjarasamningunum frá 2024.